Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Nátttröll

$
0
0

ið Össur Skarphéðinsson var á Bylgjunni. Ég náði bara síðustu línunum en hann leggur til að taka upp Evru og ganga í Evrópubandalagið.

Ekki veit ég hvernig þessi gamli kommi getur lokað öllum skilningarvitum fyrir því sem er að gerast í heiminum. Skilið ekki neitt af því sem fram fer. Enda finnst honum Píratar vænlegir til fylgilags.

Það er vond tíðindi að Össur Skarphéðinsson, ætli að halda áfram á Alþingi. Hann getur þar auðvitað haft sálufélag við Steingrím J. Sigfússon sem er af sama skoðanalega sauðahúsi. Best væri að þeir væru tveir saman sem mest á kaffistofunni til að skyggja ekki á þá nýju þingmenn sem senn koma til leiks.

Kjósendur gætu teóretískt hugsanlega afstýrt þeim ótíðindum að Össur fari aftur á þing. En steinrunnin stjórnmálatröll eins og hann stýra atburðarásinni yfirleitt þannig að allir geti tapað nema þeir sjálfir.

Össur minn, hættu við að halda áfram í pólitík og vertu bara skemmtilegur eins og þú getur velverið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922