í áliti meðal almennings heyrir maður glögglega.
Fólk er farið að tala meira um að eitthvað sé spunnið í hana sem menn voru auðvitað ekkert að spá í meðan hún var bara puntuformaður í þessum kommúnistaflokki hans Steingríms Jóhanns og stóð sífellt í skugganum af honum, Svandísi Svavars og Stalíns.
Nú er hún að springa út og ég er að fá meira álit á henni með degi hverjum. Hún þarf bara að sýna þessu uppivöðsluliði sem er að vaða þarna uppi í VG hver sé húsbóndinn á heimilinu og láta ekki svona frekjustampa eins og Björn Val og stelpuna sem er að rífa sig hvað sem hún heitir og laglega strákinn sem ég man ekki heldur hvað heitir, vera með múður.
Áfram Katrín, þú ert að vaxa með nýrri stjórn.