Andrésar Inga og Rósu Bjarkar sem eru kjörin af kjósendum VG til að vinna að heillum þjóðarinnar eru með ólíkindum. Þetta fólk er með billegum stælum að vekja á sér athygli til að þvælast fyrir flokki sínum þegar hann ætlar að axla ábyrgð. Fyrir hvaða flokk eru þau kjörin á þing? Bera þau enga ábyrgð gagnvart flokki sínum? Ætla þau að hlaupa frá borði þegar þeim dettur í hug? Hverskonar uppeldi hefur þetta fólk fengið? Skilur það ekki hugstakið samábyrgð þjóðar og þings?
Þetta fólk styður formann sinn en er samt með þessa billegu auglýsingamennsku fyrir sjálft sig. Vekur vantrú almennings á heilindum stjórnarinnar og meirihluta hennar.
Vonandi uppsker þetta fólk eins og það sáir.Gjalda skaltu lausung við lygi. Stálhörku gegn stælum þessara þingmanna.