Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Don´t I hate Microsoft?

$
0
0

fyrir að hafa prakkað mig til að skipta á Windows 7 í 10 eiginlega líka óvart þegar vandamál komu upp. 

Ekkert hefur snúist rétt í þessu 10 og enga hjálp er eð fá hjá Microsoft nema almennt kjaftatæði virtual assitanta, kannski eru þeir líka ekki með fulla þjónustu um helgina núna sem gerir mig graman. Ekkert life chat eins og hjá alvöru hugbúnaðarfyrirtækjum. Ekkert hægt að emaila support, bara kjaftæði FAQ og spurningar um allt annað en það sem mann vantar.

Ég get ekki reinstallað af því að settings takkinn er bilaður,og kemur ekki upp nema blár blossi, en maður þarf að fara þar í gegn segja þeir.Search windows glugginn er frosinn fastur hjá mér  Þannig  þannig að ég get ekki leitað að snipping tool sem mig vantar og hlýtur að vera einhversstaðar að finna.  Sjálft 10 kerfið er með þvílíkar slaufur sem leiða alltaf til engrar niðurstöðu og uppfullt af gluggum sem gera ekki neitt. Búið að bila svo einu sinni að ég varð að fara á verkstæði en nú er það aftur svona.

Já, allur arkitektur hjá Microsoft er leiðinlegur samanborðið við Autodesk tikl dæmis.Teikniverkið í Word er hlægilega vitlaust og lélegt til dæmis. Excel er þvílíkt frostgjarnt að maður verður að umgangast það varlega og ef það frýs er ekki hægt að endurheimta neitt. Ég þekki ekki mörg önnur forrit frá Microsoft þar sem ég hef ekki þurft á þeim að halda. En ég nota Word sem ég get alveg notað og auðvitað excelinn sem er um margt góður þó ég kunni hann hvergi til nægilegrar hlítar til að forrita.

En Microsoft gæti bætt sig ef þeir hlustuðu á kúnnana sína en væru ekki svona hofmóðugir í praktísku einkaleyfi sínu. Bill ætti að hysja upp buxurnar í hofmóðugshætti sínum sem hann er áreiðanlega svona fastur í vegna of mikillar velgegni fyrirtækisins í praktísku einkaleyfi þess á stýrikerfinu sem er í grunninn ómögulegt en maður hefur ekkert annað raunhæft.

I both hate and admire Microsoft.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922