standa yfir úr öllum áttum, frá samherjum til hatramra andstæðinga,sem virðast telja að helgislepja sé það vænlegasta til að nota gagnvart almenningi í máli sem fáir þora að ræða æsingalaust.
Sveinbjörg Sigurjónsdóttir hefur haft kjark til að ræða málefni hælisleitendabarna og þau erfiðu viðfangsefni sem þessi málaflokkur hefur fært þjóðinni, mest vegna eigin tilverknaðar og ræfildóms.
Í viðtalinu talaði Sveinbjörg um sokkinn kostnað vegna dvalar barna flóttamanna í skólum landsins sem síðan færu í burt frá landinu. Sveinbjörg sagði meðal annars:
„Kennarar og félagsráðgjafar sem ég hef rætt við að þeir hafa talað um hversu vandmeðfarið og hversu mikill kostnaður fylgir því að taka á móti börnum sem eru í leit að alþjóðlegri vernd og styðja þá auðvitað til að læra íslensku og komast af stað í námi. Þetta er mismunandi eftir því hvort þetta séu stelpur eða strákar, vegna þess að svo eru þau kannski farin eftir 6 mánuði, 12 mánuði, 1 ár 2 ár þegar búið er að vísa fjölskyldunum úr landi, þá er þetta að einhverju leyti sokkinn kostnaður hjá Reykjavíkurborg.“
Sveinbjörg sagði enn fremur:
„En þegar þau eru sett inn í bekki vegna þess að við erum með stefnu skóla án aðgreiningar, að þá verður mjög mikill fókus af þessum hópi inni í bekknum sem þarf stuðning, mjög margir sem eru á einhverfurófi, eru með athyglisbrest eða þurfa sérstaka aðstoð í námi sem að fá hana kannski ekki vegna þess að fókusinn er á öðru. Þess vegna hefur þeirri hugmynd skotið upp hvort það sé eðlilegt að það sé bara sérskóli stofnaður sem taki við þessum börnum sem eru að koma með foreldrum í leit að alþjóðlegri vernd. Síðan þegar fjölskyldan er komin með dvalarleyfi á Íslandi, þá fari þau inn í skólana.“
Fyrir þessi ummæli hefur Sveinbjörg verið gagnrýnd vítt og breitt undanfarið, fyrst af pólitískum andstæðingum, síðan af hinum borgarfulltrúa flokksins, Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur, og loks af ungum framsóknarmönnum.
Í pistli sem ber heitið „Sokkinn kostnaður“ dregur Logi Bergmann Eiðsson saman skilgreiningu Vísindavefs HÍ um sokkinn kostnað:
„Sokkinn kostnaður er allur kostnaður sem fallið hefur til vegna kaupa á vöru eða þjónustu sem ekki er hægt að selja aftur og ekki er hægt að nýta til annars en upphaflega var ætlað. Slíkur kostnaður ætti ekki að hafa áhrif á ákvarðanir í framtíðinni.“
Logi skrifar síðan:
„Þetta er það sem borgarfulltrúa Framsóknarflokksins finnst um að börn hælisleitenda skuli fá kennslu í skólum Reykjavíkurborgar. Það sé algjörlega óvíst hvort þau fái leyfi til að vera hér til frambúðar og því ætti bara að setja þau í sérstakan skóla svo þau trufli nú ekki kennslu íslensku barnanna. Og kosti svona mikið.
Þessi hugmynd hefur, að sögn hennar, skotið upp kollinum. Hún reyndar segir ekki hvar henni skaut upp og miðað við viðbrögðin virðist ekki mikill hljómgrunnur fyrir henni, þótt hún gefi í skyn að sumir kennarar séu henni sammála. En það er ekkert grín þegar kjörinn fulltrúi lætur svona út úr sér. Um börn.“
Helgislepja Faríeanna sem lýst er ágætlega í Biflíunni löðrar um allt í þeim ofsafengnu viðbrögðum við raunsæju mati Sveinbjargar á raunverulegu ástandi í skólum landsins. Hárréttu mati kjörins fulltrúa Framsóknar og Flugvallarvina.
Þá ræðst samherjinn Guðfinna Jóhanna, sem Sveinbjörg dró með sér í Borgarstjórn, að henni af öllum manneskjum og virðist ætla að nota tækifærið til að velta Sveinbjörgu úr vegi fyrir sjálfri sér. Sömuleiðis einhverjir ungir Framsóknarmenn(hvar sem þá skyldi nú vera að finna??)hneykslast oní tær!
Sveinbjörg hefur ekkert annað til saka unnið en að ræða um atriði sem er stórvandamál í skólakerfinu. Skóli án aðgreiningar er að eyðileggja stóra árganga íslensks æskufólks Afleiðingin er Grunnskóli sem skilar af sér stórum hópum af ólæsu, óskrifandi og óreiknandi einstaklingum sem fengu aldrei þá kennslu sem þeir þurftu til að ná tökum á því sem þeir gátu lært.
Skömm elítunnar og góða fólksins er mikil fyrir þessar ódrengilegu árásir og útúrsnúninga þar sem farísear lemja á tollheimtumanninum í helgislepju sinni fyrir það eitt að vekja athygli á alvarlegu vandamáli þjóðfélagsins sem venjulega er þaggað niður af sama fólkinu.
Hvar eru skoðanir þessa fólks á vandamálinu sem nú hæst hneykslast í þessum ómaklegu árásum á Sveinbjörgu Sigurjónsdóttur?