Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Vitleysan veður á súðum

$
0
0

þegar þjóðir heims taka matinn frá sveltandi fólki í Afríku til að búa til úr honum lífdísil til að gera bensínið fyrir einstæðu móðurina uppi á Íslandi sem  þarf að keyra krakkann sinn í skólann, bæði  verra og dýrara.

Allt eftir forskrift unglingsins með Asberger- Heilkennið sem heldur að hlýnun jarðar geti ekki stafað af sveiflum í útgeislun sólar heldur að útblæstri gróðurhúsalofts af mannavöldum.

Geir Ágústsson skrifar svo:

"Matarsóun

Í rándýrri viðleitni til að reyna minnka notkun á jarðefnaeldsneyti hafa menn dottið niður á svolitla aðferð: Að brenna matvæli!

Þannig er eldsneyti með mikinn orkuþéttleika tekið úr umferð, a.m.k. að hluta, og eldsneyti með lítinn orkuþéttleika notað í staðinn.

Þetta hefur allskyns afleiðingar. Til að byrja með leiðir þetta til verra eldsneytis og dýrara. Vefþjóðviljinn tók þetta ágætlega fyrir í mörgum pistlum, t.d. með eftirfarandi orðum:

Í tíð vinstri stjórnarinnar voru leiddar í lög kvaðir sem þvinga bensínstöðvar til að blanda dýrum og orkusnauðum jurtaafurðum í bensín og Dieselolíu. ... Vínandinn eða korn-etanólið, sem nú er blandað í bensín, er dýrara í innkaupum en bensín. Etanólið er einnig um þriðjungi orkuminna en óblandað bensín. Íblöndunin leiðir því til aukinnar eyðslu í bílvélum og fleiri ferða á bensínstöðvar og þar með aukins innflutnings eldsneytis.

Enn er þessi kjánalega kvöð í gildi, því miður.

En þar með er ekki öll sagan sögð. Hvaðan eiga öll þessi matvæli að koma? Jú, frá ökrum bænda. Bændur senda uppskeru sína í bílvélarnar og hin aukna eftirspurn eftir afurðum þeirra þrýstir upp verði á mörkuðum, m.a. þeim þar sem fólk er að reyna kaupa sér í matinn. Hið hækkandi verð hvetur svo bændur til að leggja enn meira land undir ræktunina, þá vitaskuld á kostnað náttúrunnar. Lokaniðurstaðan er: Fátækt fólk hefur minna að borða, og náttúran fær skellinn.

Af því við viljum ekki nota jarðefnaeldsneyti sem liggur bara í jörðinni og bíður eftir því að breytast í hagkvæma orku."

Umhverfisfasismi vinstra liðsins sem umhverfisráðherrann okkar sem engin kaus er  ötull málsvari fyrir gengur út í þessar öfgar.  Gæska þessa liðs í garð lítilmagnans er óendanleg þó það sjái ekki niður á tærnar á sér í rauntímanum.

Það veður á súðum í umhverfisvitleysunni hjá vinstra líðinu og skálknum AlGore  um allan heim.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922