í þjóðfélaginu er að verða alger.
Palli Vil blogggkóngur skrifar:
"Um 90 prósent kennara í grunnskólum eru konur. Drengir fá ekki karlkyns fyrirmyndir þar. Í framhaldsskólum er brottfall drengja um 30 prósent en stúlkna um 20 prósent. Þegar komið er í háskóla er kynjahlutfall nemenda þannig að karlar eru minnihlutahópur: 70 prósent háskólanema eru konur en minna en þriðjungur karlar.
Ísland á heimsmet í lágu hlutfalli karla í háskóla, segir Hermundur Sigmundsson, prófessor í lífeðlislegri sálfræði.
Hvers vegna?
Jú, skólakerfið er gegnsósa af kvenmenningu. Þöggun drengja byrjar strax í leikskóla og heldur áfram upp öll skólastig.
Stúlkum er kennt að vera stoltar en drengjum að skammast sín. Kvenmenningin talar með fyrirlitningu um ,,drengjamenningu" og býr til hugtök eins og ,,eitruð karlmennska."
Yfirtaka kvenna á skólakerfinu getur ekki endað vel."
Ég man glöggt hversu virðulegir karlkennararnir voru í GaggóAust á minni tíð 1950. Stóri Rauður, Litli Rauður, Sveinbjörn Sigurðsson, GUÐMUNDUR ÞORlÁKSSON,ÁRNI MAGISTER ENSKUMAÐUR, HELGI ÞORLÁKSSON, Björgvin Magnússon, GUNNGEIR PÉTURSSON. Ingimar skólastjóri ......,Ástráður Sigursteinsdórsson, og fleiri. Meirihluti kallar og svo kellingarnar færri færri. Ætli nú séu nokkrir kallar eftir?
Í M.R. voru svo mun fleiri kallar. Þóroddur Basi, Jón Júl,Mangi Finnboga,Mangi franski,Magnús eðlisfræði, Hjörtur Hansson, GUÐMUNDUR ARNLAUGSSON, BJÖRN BJARNASON, PÁLMI HANNESSON, GYLFI Þ. GÍSLASON , Guðni kjaftur, EINAR MAGNÚSSON, GUNNAR NORLAND, Kristinn Ármansson, SIGGI Vegamála, Skúli kollega Þórðarson, Halldór hlaupara. Svo man ég Bodil Sahn eina kvenna þar. Ekki veit ég hvernig hlutfallið er þar núna?
Yfir allt finnst mér helst vera viðtöl við kellingar í öllum blöðum og rásum.Þær eru yfirleitt með allar skoðanirnar.
En strákar horfa nú yfirleitt heldur meira á stelpur en stráka af einhverjum ástæðum svo kellingavæðingin hefur kannski líka sína kosti?