Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Viðreisn veður á súðum

$
0
0

þegar Þorgerður Katrín virkjar Borgarlínuna sem sitt baráttumál.

Hún segir:

"Þorgerður Katrín hefur miklar áhyggjur:

„Með þessu er ég að segja að ég hef verulegar áhyggjur af því að ríkisstjórnin, fjármálaráðherra og aðrir, eins og Vinstri græn í þessari ríkisstjórn, skynji ekki þann mikla bráðavanda sem íslensk þjóð stendur frammi fyrir.

Vissulega hefur margt verið vel gert en atvinnuleysi er mikið og það mun bara aukast á næstu mánuðum og þá þurfum við aðgerðir strax, ekki eitthvað sem ríkisstjórnin er að boða í fjármálastefnu eftir eitt, tvö eða þrjú ár.

Við þurfum að gera þetta strax því að við þurfum að svara aðkallandi ákalli fólks um allt land, ekki síst af Suðurnesjunum, um að það þurfi vinnu.

Þess vegna vil ég hvetja ríkisstjórnina, fólk í Vinstri grænum sem er haldið ákveðinni vanlíðan innan ríkisstjórnarinnar, til að fara í það að hvetja fjármálaráðherra til að ýta við borgarlínu og fara strax í hana, ekki bíða með hana.

Sem sagt: Gegn atvinnuleysinu á Suðurnesjum vill Þorgerður Katrín vaða í Borgarlínuna í Reykjavík !.

Já mikil er trú þín kona gæti einhverjum dottið í hug.Finnst engum hér vera vaðið á súðum við að klekkja á ríkisstjórninni?

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922