Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Tónlist á Klaustrinu

$
0
0

heyrðist ekki á upptökum Báru. Þess vegna heyrast samræður drykkjubræðranna svona vel.

Baldur í Svíþjóð velti þessu atriði fyrir sér á Útvarpi Sögu. Hann taldi það venju að tónlist væru spiluð á svona stöðum. Ef svo væri ekki þá væri það mjög óvanalegt. Og aðeins eigandi staðarins gæti stjórnað því hvort spilað væri eða ekki.

Ef engin tónlist væri spiluð þá væri það í ákveðnum tilgangi sem við blasir vegna upptöku Báru. Spurning er hvort þingmennirnir hafi ekki tekið eftir þessari músíkleysu? Eða var hægt að filtera hana frá í upptökunum af samræðunum með tæknibrellum?

Annar innhringjandi spurði um raddprófanir.Hún taldi að sumar raddir sem heyrast væru ekki raddir meintra þátttakenda.

Hníga ekki öll rök að því að þetta Klaustursmál verði að rannsakast af lögreglu til að fá allan sannleikann í ljós. Þó að margir séu orðnir leiðir á þessu stagli eru afleiðingarnar svo alvarlegar fyrir marga að það er ekki hægt að þeir sitji uppi með grunsemdir um að maðkar séu í mysunni?

Eru raddir manna þeirra eða annarra? Vantar tónlist á Klaustrinu sem venjulega er þar spiluð? 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922