Gústaf Skúlason vekur athygli okkar undir hvað við skrifuðum í Marrakesh.
Hann segir svo m.a. í Mbl.í dag:
"Talsmenn ríkisstjórnarinnar dylja fyrir þjóðinni, að með staðfestingu samþykktar um réttindi farandfólks (Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration), er ekki aðeins verið að skuldbinda landsmenn til að innleiða markmið sáttmálans á Íslandi, heldur hafa skilmálar tveggja annarra sjálfstæðra samþykkta verið staðfestir í leiðinni sem hvergi er greint frá. Annars vegar skuldbindingar ríkisins gagnvart flóttamönnum (Global Compact for Refugees) (3.gr.) og hins vegar Agenda 2030 (18. gr.) sem er útópía sósíalismans um paradís á jörðu ár 2030.
SÞ vill komast þangað með skattahækkunum á þeim „efnameiri“ og fjárfærslum til þeirra „efnaminni“. Það eru því samtals þrjár samþykktir í þessum eina pakka sem kenndur er við réttindi farandfólks.
Ríkisstjórn Katrínu Jakobsdóttur hefur án opinberrar umræðu skuldbundið Ísland að fylgja samþykkt SÞ um réttindi farandsfólks.
Ásta Sigurbjörnsdóttir, formaður utanríkisnefndar, segir samþykktina ekki löglega bindandi fyrir Ísland. Í samþykkt SÞ er tvisvar sagt að hún sé ekki löglega bindandi en 84 sinnum talað um skuldbindingar.
Að segja að ekkert sé að marka bindandi loforð er að sjálfsögðu það sama og segja að ekkert sé að marka ríkisstjórnina, sem samþykkti SÞ-pakkann fyrir Íslands hönd. Ríkisstjórn Íslands hefur staðfest „að ekkert ríki geti sjálft tekið á málefnum innflytjenda“ (15. gr.) og lokað á að þjóðin geti ráðið því hverjum hleypt er inn í landið.
Ýmis ríki, t.d. Bandaríkin, Ísrael og Ástralía, hafna samningnum þar sem þau vilja sjálf stjórna eigin landamærum. Þrettán herforingjar réðu Frakklandsforseta frá undirritun. Í Belgíu olli samþykktin stjórnarslitum.
Þegar Bandaríkin töldu ekki lengur stætt á að leggja nafn sitt við mannréttindaráð SÞ m.a. vegna einræðisríkja eins og Kína og Venúzúela, þá býðst Ísland til að breyta heiminum „innan frá“.
Me too hefur greinilega stigið vinstri stjórn Katrínar Jakobsdóttur svo til höfuðs að kosta má löng ræðuhöld í málstofu SÞ um glæsilegan árangur jafnréttisbaráttunnar á Íslandi. Þykir ekkert mál að skipta út góðu orðspori þjóðarinnar fyrir varaforsetastól sem síðan er notaður sem afsökun fyrir einræðisríki til að fremja mannréttindabrot. Mætti ætla að utanríkisnefnd telji, að SádiArabar og Sameinuðu furstadæmin innleiði tafarlaust lýðræði og kynjajafnrétti, vegna tilmæla íslensku sendinefndarinnar. Eða þá að heimurinn standi agndofa þegar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra birtist í vel mynduðu ræðupúlti og flytur sköpun paradísar „innan frá“.
Markmið, skuldbindingar, skilmálar og stefnuyfirlýsingar samþykktanna þriggja eru óframkvæmanlegar þegar samherjarnir hunsa lýðræðið. Skattfé er mokað í gagnslausa skriffinnsku, orðavaðal og útópíu vinstri manna sem setur komandi kynslóðir í áhættubönd sem enginn veit hvað kostar.
Fyrir utan að vera stjórnarskrárbrot gæti þessi stólahégómi orðið dýrkeyptari en Icesave. Agenda 2030 er þvílíkt loforðamoð að sjálft Kommúnistaávarpið læðist með veggjum.
Hin nýja sjálfskipaða öreigastjórn Íslands lofar á næstu 12 árum
að útrýma hungri og fátækt í heiminum
skapa jafnan aðgang allra jarðarbúa að fjármagni og náttúruauðlindum
afnema allar niðurgreiðslur landbúnaðarafurða
helminga umferðarslys og andlát í umferðinni
útrýma kúgun kvenna
útvega öllum jarðarbúum ríkisfang, fæðingarvottorð og persónuskilríki
útvega öllum jarðarbúum innanhússsalerni tvöfalda orkuafköst heims
skapa 7% árlegan hagvöxt í þróunarlöndunum
skapa fulla atvinnu fyrir alla jarðarbúa að meðtöldum unglingum og fötluðum
koma á sömu launum fyrir sömu vinnu
vernda réttindi farandverkafólks og kveninnflytjenda
tryggja hærri launaaukningu hjá 40% íbúum heims með lægstu launin en hjá öðrum
eyða öllum slumhverfum og útvega húsnæði handa öllum jarðarbúum
greiða 100 miljarða dollara árlega eftir 2020 til þróunarlandanna vegna loftslagsbreytinga
stöðva allar ólöglegar fiskveiðar í heiminum 2020 og setja lög um heimsstjórn fiskveiða
auka tekjur þróunarlanda með nýjum sköttum
auka stöðugleika heims með sameiningu stjórnmála í samræmda stefnu
styðja Agenda 2063 fyrir Afríkusambandið
framfylgja öllum markmiðum og loforðum pakkans
gera refsivert að gagnrýna innflytjendur og kenna fjölmiðlum að fjalla rétt um málin.
Ofurmenni ríkisstjórnarinnar fara létt með að útvega ferðamönnum salerni innanhúss og útrýma fátækt ellilífeyrisþega og öryrkja. Að allir fá húsnæði á viðráðanlegu verði ætti þá ekki að taka meira en 12 daga á Íslandi.
Á meðan sósíalíski Internationalen og Progressive Allians verða fyrir skakkaföllum í landi eftir landi, þar sem fólk rís upp gegn yfirstjórn andlitslausra yfirboðara sem enginn hefur kosið eða getur sett úr embætti, þá hleypur ríkisstjórn Íslands til og aðstoðar alþjóðasósíalismann í herbúðum SÞ og ESB fyrir það eitt að fá að komast í ræðupúlt SÞ.
Væri ekki nær að fylgja áratuga vinum og samherjum eins og Bandaríkjamönnum að málum? "
Þannig er búið að undirbúa opnun landamæra Íslands fyrir innflytjendastraum. Lausn S.Þ. á fólksfjölgunarvandamálum Afríku er að flytja hana til Evrópu.
Undir þá stefnu George Soros höfum við Íslendingar skrifað.