Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Stormur í vatnsglasi

$
0
0

er upphlaup íhaldsins útaf Bragganum og Félagsbústöðum. Fylgi Samfó dalar örlítið en íhaldsins vex ekki neitt fyrir því. Meirihlutinn heldur og stendur traustum fótum sem aldrei fyrr.

Þetta hefur ekki nokkur pólitísk áhrif. Þetta vinstra lið er svo sauðtryggt að það rótast ekki.

Allt er nefnilega betra en íhaldið og engum dettur í huga að kjósa það þó að Bragginn og Féló hafi komið uppá.

Auk þess sem þessi Braggi er líklega bara á réttu verði, það voru bara áætlanirnar sem voru vitlausar og þurftu auðvitað að endurskoðast og leiðrétta eins og alltaf er gert í fjárhagsáætlunum sveitarfélaga. Þar er allt fært til raunkostnaðar eftir mitt ár þegar menn sjá að allar áætlanir stóðust ekki og allt varð dýrara en ætlað var.

Bragginn og stráin standa fyrir sínu. Bara klára kamarinn með stæl og meirihlutinn stendur traustum fótum.

 Það vita allir að fjárhagsáætlanir vinstri mann standast aldrei því þeir kunna ekki samlagningu né annað í tölum. Þeir eru á hinu mjúka sviði félagsmála.

Allt upphlaupið er bara stormur í vatnsglasi.

Húrra!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922