og Félagsbústöðunum. Svo segir í Mogga:
"Samkvæmt könnuninni myndu um þrír af hverjum tíu, sem tóku afstöðu, greiða Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt en það er svipað og kjörfylgi flokksins í vor. Samfylkingin mælist með 21 prósent en hlaut tæp 26 prósent í kosningunum. Píratar bæta nokkru við sig og fengju 12,7 prósent atkvæða samanborið við tæp 8 í vor. Viðreisn mælist með rúm 9 prósent nú samanborið við rúm 8 í vor. Vinstri græn mælast með ríflega 8 prósent og bætir nokkru við sig. Flokkurinn fékk 4,6 prósent atkvæða í borgarstjórnarkosningunum.
Séu niðurstöður könnunarinnar mátaðar við stóla borgarfulltrúa myndi meirihlutinn halda velli með þrettán fulltrúa en vera öðruvísi samansettur. Samfylkingin myndi tapa tveimur mönnum en Píratar og Vinstri græn bæta við sig einum manni hvor flokkur. Borgarstjórnarflokkur Viðreisnar myndi áfram telja tvo menn. Samsetning borgarfulltrúa minnihlutans væri óbreytt."
Það voru bara áætlanirnar sem hljóta hafa verið vitlausar.
Að menn skuli ekki hafa áttað sig á þessu grundvallaratriði. Kjósendur í Reykjavík láta hinsvegar ekki blöffa sig.
Meirihlutinn stendur traustum fótum. Ekki dettur nokkrum manni í hug að Sjálfatæðisflokkurinn geti eitthvað bætt við þetta.
Er ekki krafa dagsins að Eyþór Arnalds segi af sér fyrir að vera að setja út á hinn mikla Dag B.?
Það er greinilega rétt verð á bragganum og í Félagsbústöðunum að dómi kjósenda.