Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Macron bítur í skjaldarrendur

$
0
0

ESB í fréttum.

Svo segir í Mogga:

"For­seti Frakk­lands, Emm­anu­el Macron, ætl­ar að leggja það til við Evr­ópu­sam­bandið að auka varn­ir ríkja sam­bands­ins. Tíma­bært sé að ESB hætti að reiða sig á mátt Banda­ríkj­anna á ör­ygg­is- og varn­ar­sviðinu.

„Evr­ópa get­ur ekki leng­ur reitt sig á Banda­rík­in þegar kem­ur að ör­ygg­is­mál­um. Það er í okk­ar hönd­um að tryggja ör­yggi Evr­ópu,“ sagði Macron meðal ann­ars í ræðu sem hann flutti í Frakklandi í dag. 

Macron kynnti helstu áhersl­ur sín­ar í dag og þar hvet­ur hann til nán­ara sam­starfs meðal ríkja ESB sem sé besta vörn­in gegn auk­inni þjóðern­is­hyggju. "

Það er hinsvegar sá ljóður á ESB að það er ekki eitt ríki heldur ósamstætt ríkjasamband. Hversu ósamstætt sýndi sig í Bosníustríðinu. Engin ESB-þjóð gat tekið ákvörðun um að beita hervaldi. Það varð að sækja Bandaríkjamenn til að skakka leikinn.

Evrópusambandið getur ekki tekið sameiginlega ákvörðunum að beita hervaldi. það yrði allt of seinvirkt.  Macron verður að treysta á eigin "Force de frappé" ef hann ætlar að láta til sín taka með valdi.  Þegar Bretar eru farnir frá þá er vonlaust fyrir Frakka að ræða við Þjóðverja sem eru með eilífðarkryppu vegna heimstyrjaldanna beggja og geta aldrei ákveðið sig að fara með hernaði á hendur öðrum. Aðeins undir forystu annarra geta þeir tekið þátt í slíku. Það geta menn sannfært sig um auðveldlega með því að virða fyrir sér þýsk stjórnmál liðinna síðustu ára.

Þessar hugmyndir Macron eru algerlega dauðadæmdar og munu ekki komast til framkvæmda. Það verða Bandaríkin sem eru þau einu sem geta framkvæmt árás. Hin ríkin geta talað og rætt um málamiðlanir. 

Macron getur bitið í skjaldarrendur með digurbarkalegum yfirlýsingum. En aðeins Bandaríkin eiga raunverulegan skjöld og getu til að bíta í hann ef með þarf.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922