hjá Macron.
""Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, ætlar að leggja það til við Evrópusambandið að auka varnir ríkja sambandsins. Tímabært sé að ESB hætti að reiða sig á mátt Bandaríkjanna á öryggis- og varnarsviðinu.
„Evrópa getur ekki lengur reitt sig á Bandaríkin þegar kemur að öryggismálum. Það er í okkar höndum að tryggja öryggi Evrópu,“ sagði Macron meðal annars í ræðu sem hann flutti í Frakklandi í dag. "
Fullveldissöluflokkarnir Samfylking og Viðreisn vilja fylgja ESB í gegn um þykkt og þunnt. Það leiðir þá af sjálfu sér að við munum ekki geta skorast úr leik með að leggja til mannafla í herinn úr því að við eigum að fá að njóta skattfríðindanna fyrir okkar embættismenn til jafns við aðra í Brussel. Þá komast Íslendingar loksins í flott úniform og löjtenantar Benedikt Jóhannesson og Logi Már geta spókað sig í skrúðgöngum Macrons.
Samfylking og Viðreisn vilja í sambandsherinn með Macron.