Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Endurúthlutun lands

$
0
0

fer nú fram í S-Afríku. Þar er jarðnæði tekið af bændum sem hafa þann galla að vera hvítleitari í framan en þeir innfæddustu. Stjórnvöld reka áróður alþjóðlega fyrir réttmæti ráðstafananna. Ekki er að efa að þau fá góðar undirtektir hjá íslenskum vinstrimönnum og góðu fólki.

Er ekki athugandi fyrir þetta fólk að fá afrit af þessum lögum til að hafa þau klár þegar það telur henta að nota þau til dæmis gegn Philip Rathcliffe? Þegar réttlætið er orðið skilyrt eftir allskyns forsendum þá er búið að skapa framtíðarþjóðfélagið sem þetta fólk er ávallt tilbúið að réttlæta fyrir sjálfu sér.

Rhodesía var auðugt land þar sem enginn svalt. Kommúnistanum Mugabe  tókst að koma þar á örbirgð þar sem þeir innfæddustu voru ekki á því menningarstigi að geta tekið við búskap. Það sama mun líklega gerast í S-Afríku.

Hvort það gerist hér ef jarðeignum Rathcliffe verður endurúthlutað með hjálp þeirra spekinga sem hæst hafa talað um þá nauðsyn á eftir að koma í ljós.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922