þó að hún skrifi lærða grein í Mogga um ágæti GDPR Persónuverndarinnar.
Fyrir mér er þetta ofvaxið skrímsli sem Íslendingar hafa akkúrat ekkert að gera við. Forysta Sjálfstæðisflokksins virðist pikkföst í EES hugmyndafræði og halda flokksmönnum föngnum í henni. Stór hluti flokksmanna krefst endurskoðunar á öllu sem viðkemur EES og Regluverki þaðan fengið.
Ef Sigríður ætlar í framhaldi að keyra 3. orkupakkann ofan í okkur þá er mér nóg boðið innan dyra í Valhöll og læt ekki draga mig mótþróalaust á þann bás bara af því að embættisveldið hjá Landsvirkjun og víðar hefur þá skoðun að hækka eigi rafmagnið á Vatnsorkuþjóðinni og leggja sæstreng til Evrópu.
Sigríður sannfærir mig ekki.