voru á dagskrá hjá Pétri og Bjarna Jónssyni rafmagnsverkfræðingi á Sögu áðan. Þeir fóru vel yfir hvílík hætta steðjaði að fullveldi Íslands ef þingmenn álfuðust til að samþykja pakkann hugsanlega mest af því að þeir skilja hann ekki sjálfir frekar en annað sem þeir hafa samþykkt af ESB gerðum án þess að lesa þær.
Fyrsta spurningin sem þarf að spyrja: Hvað græðir Ísland á því að samþykkja þetta?
Lægra raforkuverð fyrir neytendur? Mikill efi er talinn leika á því að gerist á Íslandi. Í Noregi hefur raforkuverðið til neytenda tvöfaldast á þessu sumri þegar vatnsbúskapur er í lágmarki vegna slæms vatnsárferðis og þurrka.
Getur þetta ekki gerst hér eftir að við höfum látið leggja fyrir okkur sæstrenginn fyrir 800 gefins milljarða sem verða líklega í boði. Þá getum við hætt að falsa uppruna vottorð raforkunnar og ljúga því að við framleiðum rafmagn með kjarnorku úr þvi að við erum svo vitlausir að vilja ekki gera það sjálfir með þóríum verum.
Páll Vilhjálmsson segir:
"Evrópusambandið reynir núna að fá íhlutunarrétt í virkjanamál Íslendinga, með svokölluðum orkupakka ESB. Valdhafarnir í Brussel segjast aðeins ætla að grípa inn í fullveldisrétt okkar ef ágreiningur rís um ráðstöfun orkunnar. Í reynd getur ESB búið til ágreining hvenær sem vill og í framhaldi bæði ákært og dæmt um íslensk málefni.
EES-samningurinn var upphaflega gerður fyrir þau ríki sem voru á leið inn í Evrópusambandið. Þótt fyrir liggi að hvorki Ísland né Noregur, sem eru meginaðilar samningsins á móti ESB, eru á leið inn í sambandið er ekkert gert til að breyta samningnum til samræmis. Þvert á móti er stöðugt reynt að færa valdheimildir frá Íslandi og Noregi til ESB.
Embættismenn í Brussel nota EES-samningin í reynd til að hola að innan fullveldi Íslands. EES-samningurinn er Trójuhestur Brusselvaldsins innan borgarmúra Íslands.
Forysta Sjálfstæðisflokksins flýtur að feigðarósi með fullveldið á meðan EES-samningurinn fær að bólgna út og yfirtaka stöðugt fleiri innanríkismál Íslands.
Tillaga Styrmis Gunnarssonar um félag fullveldissinna innan Sjálfstæðisflokksins segir sína sögu. Það þarf að spyrna við fótum."
Er forysta Sjálfstæðisflokksins heil í afstöðu sinni til ESB?
Margir efast um það eftir Persónuverndarsamþykktina. Það gegnir sama um hana og Orkupakkann og Ráðherrann okkar: Enginn hefur talið upp kostina en margir bent á gallana og kostnaðinn og skriffinskuna sem þessu fylgir.
Af hverju vorum við þá að þessu?
Eru 2. og 3. Orkupakkinn bara fyrir og vegna EES samningsins gamla með áorðnum viðbótum eða fyrir Ísland?