Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Evrópusambandið virkar aldrei

$
0
0

Páll Vilhjálmsson segir svo á sínu bloggi:

" Ef ríkisstjórn Merkel kanslara Þýskalands fellur verður uppnám í Evrópusambandinu, segir Sigmar Gabriel fyrrum formaður flokks Sósíaldemókrata í Þýskalandi.

Ekki er langt síðan að Merkel sjálf sagði að falli evran muni Evrópusambandið falla.

Flóttamenn og viðtaka þeirra setur Evrópusambandið í uppnám þessa stundina; fyrir fáeinum misserum var það gjaldmiðillinn.

Evrópusambandið hefur þann hæfileika að ramba frá einni tilvistarkreppu yfir í aðra. Þriðja áfallið á sama tímabili er úrsögn Bretlands úr sambandinu, Brexit.

Tímabilið 2008 til 2018 verður fært í annála Evrópusögunnar sem upphaf að endalokum tilraunar sem hófst eftir seinna stríð - og mistókst."

Ímyndið ykkur að 52 sjálfstæðar þjóðir byggju í fylkjum Bandaríkjanna með sitt hvern fánann. Myndi alríkið virka?

Þess vegna virkar Evrópusambandið aldrei þótt ríkin séu helmingi færri.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922