"Uppsagnir tólf ljósmæðra á Landspítalanum taka gildi í dag, en þær sögðu allar upp störfum vegna kjaradeildu Ljósmæðrafélags Íslands og ríkisins. Ljósmæðurnar tólf hafa kvatt vinnustaðinn með táknrænum hætti á samfélagsmiðlum með því að birta myndir af vinnuskónum sínum og starfsmannaskírteini. Allar kveðja þær með miklum trega. Enn fleiri ljósmæður hafa sagt upp á heilbrigðisstofnunum víða um land og búast má við því að uppsögnunum fjölgi enn frekar verði ekki samið fljótlega."
Er þetta ekki fyrsta skrefið í einkavæðingu heilbrigðiskerfisins? Gengur þessi sósíalismi endalaust? Verður ekki að byggja meira á einkarekstri og að ríkið fyrir hönd notenda nái samkomulagi fyrir veitta þjónustu? Er ekki klíníkin í Ármúla nauðsynlegt skref?
Talað var um það á sinni tíð að kostnaður í menntakerfinu ætti að fylgja nemanda? Hann mætti velja skóla? Þarf þetta ekki að verða almennara heldur en að byggja sífellt á verkföllum og óánægju miðstýringarinnar sem í raun gengur ekki nema undir einræði og ofbeldis.
Getur þetta ekki verið nýtt upphaf?