Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Kysstu mig Kata !

$
0
0

er heiti á vinsælum farsa vestanhafs. Hann gengur út á það að ná ástum Kötu. Akkúrat eins og landsmenn eru nú að sverma fyrir. En það eru misjafnar væntingarnar sem kærastarnir hafa.Sumir sjá sæluríki í hillingum, aðrir sjá það fyrir að forynjur íhaldsins muni eyðileggja allt sem þær mega og koma í veg fyrir allt það góða sem átti að verða í söngleiknum. 

Yfirleitt er það nú þannig að þeir fáu munu hafa það litlu betra þegar ríkisvaldið segist ætla að bæta hag fólksins með aðgerðum. Frekar verða  það hinir mörgu sem munu hafa það verra.  

Hún Kata í væntanlegum  söngleik er líklega ekki með þá ása uppi í erminni sem munu gleðja hina mörgu á sviðinu frekar en hina fáu um stundarsakir. Miklu frekar munu hinir mörgu líklega borga um stund meira fyrir þá fáu sem teljast vera undir í þjóðfélaginu og standa höllum fæti. En svo er vanjan að allt skekkist og misréttið vex og vex þangað til að það er orðið óþolandi eins og það er víst núna. Sumir telja meira að segja á sér brotið til langframa og þeir eigi að fá til baka það sem þeim sé skuldað. Öðrum mun finnast þeir fá of lítið of seint. 

Þeir fáu eru jafnan ástmegir hennar Kötu sem er sú besta á sviðinu og er í nöp við allt misrétti. Einhverjum finnst það vera öll millistéttin og þeir sem hafa það bærilegra en hinir verst settu. Þeir skulu því þola að hafa það verra svo hinir geti haft það betra. Jafnaðarstefna er það víst kallað. 

Alveg eins og í frönsku byltingunni getur þetta snúist í höndum hinna velmeinandi.  Í stað þess að fá gull og græna skóga úr fjárhirslum aðalsins kom Napóleon og setti öreigana í úniform og lét drepa þá í ránsferðum til Þýskalands pour la gloire de France. Það var sú eilífa sæla sem beið hugsjónamannanna sem fögnuðu byltingunni við fallöxina. Það verður nefnilega aldrei neitt til úr engu hérna megin grafar og yfirleitt verður þunnt smurt eigi allir að fá sneið. Í sveita þíns andlits...

Og þar með er líklega nokkuð fyrirséð hvernig næsti þáttur söngleiksins  Kysstu mig Kata muni enda.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922