Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Sorgarfréttir af Silicone

$
0
0

er Arion er að hugsa um að afskrifa frekar 80 milljónir dollara og rífa  verksmiðjuna í Helguvík fyrir margar milljónir dollara  heldur en að láta það fé í viðbót í þessa verksmiðju sem þarf svo hún geti starfað.

Hún myndi framleiða með 65 starfsmönnum fyrir tæpa 40 miljónir dollara á núverandi lággengi á kísli en fyrir meira 50 milljónir við eðlilegar aðstæður. Það er sögulegt lággengi á kísli eins og búið er að vera á áli.   Rekstur allara slíkra iðjuvera er langhlaup en ekki spretthlaup. Sem er því miður það helsta  sem félitlir íslenskir bankar hafa skilið til þessa um fyrirtækjarekstur.  Lánað út í miðja á og þá verður að heimta endurgreiðslu upp í topp.

Eykon sagði eitt sinn um almenningshlutafélög að það eina sem ekki mætti vanta væru peningar. Og það var og er rétt.  Ef farið er af stað að byggja blokk má ekki stoppa heldur klára verkið. Annað er bara skelfing fyrir alla. Byrja ekkert nema klára það. 

Það sýnist einboðið að halda áfram og klára verksmiðjuna í Helguvík  sem er orðin hér um bil framleiðsluhæf.  Það vantar greinilega ýnislegt til að gera hana fyllilega starfshæfa svo sem að sátt náist við umhverfið. En að hætta núna og setja allt á hausinn finnst mér að hljóti að mikið óráð og sorgleg niðurstaða fyrir alla þjóðina.   Það er betra að eiga heila verksmiðju í rekstri þó mörg ár taki að borga hana upp en að eiga einskisverða ruslahrúgu sem verður auk þess að borga stórfé með.Og allt það tjón sem samfélagið verður fyrir ef hún verður ekki að veruleika.

Áfram Aríon, ekki gefast upp. Meiri peninga í þetta. Hættið bara að ráða þjófa til að reka verksmiðjuna. Sækið hið hæfasta fólk og klárið dæmið.

Ég á engra hagsmuna að gæta þarna nema þjóðarinnar allrar sem á ykkur líka. Og þetta mun bera sig innan 10 ára.  Ekki gefast uppn núna þegar þetta er kannski 95 % klárað.

Annað væru sorgarfréttir af silicone. fyrir þjóðina alla. 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922