Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Grundallaratriði

$
0
0

í stjórnmálum eru það sem Óli Björn Kárason veltir fyrir sér í grein í Mbl.í dag.

þar stendur meðal annars:

"........

Merkingarlausir merkimiðar

 

Frjálslyndir, víðsýnir og umburðarlyndir. Þrjú jákvæð orð sem stjórnmálamenn eru gjarnir að skreyta sig með. Merking orðanna er hins vegar litlu meiri eða dýpri en innihaldslausir frasar sem hafa tekið yfir pólitíska orðræðu.

 

Þeir sem eru dugmestir við að kenna sig við umburðarlyndi eru oftar en ekki fremstir í flokki þeirra sem ráðast á þá sem eru á öndverðum meiði - setja fram aðrar skoðanir en þær sem eru hinum umburðarlyndu þóknanlegar. Í víðsýni og hleypidómaleysi eru pólitískir andstæðingar brennimerktir. Samstarf er útilokað við stjórnmálaflokka sem njóta stuðnings tuga þúsunda kjósenda, jafnvel margfalt fleiri en styðja þá sem kalla sig umburðarlynda. Umburðarlyndi er gagnvart þeim sem eru sömu skoðunar - »rangar skoðanir« njóta hvorki skilnings né þolinmæði.

 

Þannig hefur merkingu orða verið snúið á haus.

 

Frjálslyndur stjórnmálamaður berst ekki lengur fyrir réttindum einstaklinga og auknu athafnafrelsi. Ný-frjálslyndi er lítið annað en fallegur búningur stjórnlyndis.

 

Undir gunnfána frjálslyndis á að seilast dýpra í vasa skattgreiðenda og útdeilda peningum. Að auka umsvif hins opinbera og taka sífellt stærri hluta tekna launafólks er merki um nútímalega frjálslynda hugmyndafræði.

 

Talsmenn báknsins

 

Þeir dagar eru liðnir þegar frjálslyndir stjórnmálamenn tóku sér stöðu við hlið sjálfstæða atvinnurekandans - börðust fyrir auknu athafnafrelsi og einföldu regluverki. Ný-frjálslyndi kallar á að frelsi sé takmarkað með fjölþættum lögum og reglum. Nútímalegir frjálslyndir stjórnmálamenn eru sannfærðir um nauðsyn þess að byggja upp öflugt eftirlitsbákn með tilheyrandi gjöldum á atvinnulífið. Framtaksmönnum er gert erfiðara fyrir og stórfyrirtækin lifa góðu lífi í skjóli báknsins og sífellt flóknari leikreglna.

 

Við sem viljum brjóta upp kerfið, einfalda regluverkið og styðja við framtaksmanninn - sjálfstæða atvinnurekandann - erum sagðir tilheyra kerfisflokki. Þeir sem eru mest uppteknir af því að fá viðurkenningu fyrir frjálslyndi og boða í tíma og ótíma kerfisbreytingar eru í raun helstu talsmenn báknsins.

 

Nútímalegt frjálslyndi neitar að eiga samleið með þeim sem vilja auka frelsi einstaklinga og takmarka afskipti ríkisins.

 

Æðsta stig nútíma frjálslyndis (því ekki má vera gamaldags) er að berjast fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu og leggja áherslu á þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður fyrir kosningar. Í anda ný-frjálslyndis er hins vegar eðlilegt að leggja kosningamálin til hliðar að loknum kosningum til að gera leiðina inn í ríkisstjórn greiðari. Slíkt er merki um umburðarlyndi og víðsýni.

 

Stjórnmálamenn sem berjast fyrir frjálsum og opum alþjóðaviðskiptum geta ekki lengur kennt sig við frjálslyndi. Að standa vörð um rétt þjóðar að gera sjálfstæða samninga um opin viðskipti við lönd, sem standa utan Evrópusambandsins, er ekki í takt við nýtískulegt frjálslyndi. Afnám tolla og almennra vörugjalda, sem ýtt hefur undir aukin alþjóðleg viðskipti, lækkað vöruverð og innleitt aukna samkeppni í smásölu er samkvæmt skilgreiningu nútímastjórnmálamanna aðeins aðferðafræði gamaldags frjálslyndis. "

 

Steingrímur J. Sigfússon segir í grein í sama blaði:

"....Ég læt mig hafa það að minnast að lokum á einn fremur saklausan smáfrænda í fjölskyldunni sem er merkimiðapólitíkin. Hún gengur í einfaldleika sínum út á að velja sér sjálfum jákvæða merkimiða:

 

- Þú segist vera lýðræðissinni. Einmitt það. Eru þá aðrir andlýðræðissinnar?

 

- Þú ert umbótasinni (eins og margir voru að eigin sögn og margra fjölmiðla og álitsgjafa í kjölfarið fyrir næstsíðustu kosningar). Eru þá allir hinir á móti umbótum? Og, liggur fyrir óskeikul og óumdeild flokkun á því hvað séu umbætur og hvað ekki?

 

Og nú er það frjálslyndi. Frjálslyndir flokkar og frjálslynd öfl móti rest. Er brennivín í búðir frjálslyndi? Eru lýðheilsusjónarmið ófrjálslynd? Ja, spyr sá sem ekki veit.

 

Kornungur að árum heyrði ég mér 10-20 árum eldri menn tala um sjálfa sig sem hina ungu lýðræðiskynslóð. Það voru mín fyrstu kynni af merkimiðapólitík."

Það gott að helstu hugmyndafræðingar stjórnmálaflokkanna hittist við stjórnarmyndunarborðið þar sem ESB flokkarnir eru blessunarlega hvergi nærri.

 

Það væri gott ef grundvallaratriðin væru í heiðri höfð.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922