„Það staðfestist að Landspítali ákvað að Tómas Guðbjartsson yrði í leyfi frá störfum um sinn í ljósi heildarhagsmuna. Slík ákvörðun hefur ekki verið tekin hvað Óskar Einarsson varðar,“ segir í svari Landspítalans við fyrirspurn fréttastofu.
Niðurstaða nefndarinnar var sú að íslenskir læknar og vísindamenn hafi brotið lög og dregið plastbarkaþegann, Andemariam Beyene, í fjölmiðla til að auglýsa aðgerðina. Þeir beri þó ekki ábyrgð á því að Beyene gekkst undir aðgerðina. Hér má lesa ítarlega úttekt á niðurstöðum skýrslunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru niðurstöður og ábendingar nefndarinnar teknar mjög alvarlega og Landspítalinn mun bregðast við þeim.
„Þegar hefur verið ákveðið að vísa málinu til siðfræðinefndar spítalans, taka upp samskipti við vísindasiðanefnd varðandi ábendingar skýrslunnar, m.a. um mun á gagna- og sjúklingarannsóknum sem og að taka afstöðu til tillögu skýrslunnar um bætur til ekkju sjúklingsins. Að öðru leyti mun spítalinn taka sér tíma til að rýna skýrsluna gaumgæfilega og bregðast við frekari ábendingum og málum sem upp kunna að koma í þeirri rýni,“ segir í svari Landspítalans við fyrirspurnum fréttastofu."
Þessi þekkti snillingur og lífsbjargari fjölda fólks er sakfelldur fyrir eitthvað siðfræðibull ofan úr Háskóla upp úr fólki sem ber ekkert skynbragð á læknavísindi eða tilgang þeirra. Hann er að bjarga mannslífum.
Það er ljóst að Tómas var að grípa til örþrifaráða til að reyna að bjarga dauðvona sjúklingi sínum. Hann ver ekki að vinna að persónulegum hagsmunum sínum heldur að uppfylla Hippokratesareið sinn. Vitað er að læknar hafa stundum þurft að grípa til óvenjulegra aðgerða og notkunar á óprófuðum aðferðum. Hvað gerði ekki Pasteur þegar hann sprautaði hundaæðisskýklum í barnið sem var annars dauðvona? Var ekki Tómas að reyna hið ómögulega sem síðasta úrræði.
Að ráðast svona á virtan lækni sem er að reyna að bjarga lífi manns er ósæmilegt og til skammar. Vonandi borgar einhver ekki fyrir þetta með lífinu sínu?
Þetta er fáránleg ákvörðun.