er lýst þannig:
"Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á mikilvægi mannúðarsjónarmiða og skilvirkni í málefnum hælisleitenda og að aðstoð við flóttamenn leiði til tækifæra til sjálfsbjargar. Taka þurfi vel á móti þeim sem leita hælis á Íslandi og eiga rétt á því að komast í skjól frá stríðsátökum og brýnni neyð og tryggja að kerfið hafi til þess burði.
Margt sé ógert þó mikill árangur hafi náðst við styttingu málsmeðferðartíma. Flokkurinn vill einfalda veitingu atvinnuleyfa fyrir fólk utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) , meta menntun þess að verðleikum og tryggja að aðbúnaður á Íslandi geri landið eftirsóknarvert til framtíðar.
Laða þurfi til landsins erlenda sérfræðinga sem miðla þekkingu sinni til starfsmanna fyrirtæja og styrkja stöðu þeirra."
Það segir sig sjálft að flokkurinn vill ekki að svona nkkuð viðgangist eins og Jóhann Elíasson vekur athygli á::
" TEKINN Í 11 SKIPTI VIÐ AÐ REYNA AÐ SMYGLA SÉR UM BORÐ Í SKIP SEM ER Á LEIÐ TIL AMERÍKU.
Þessu greindi fréttastofa Stöðvar 2 frá í kvöld en RÚV fannst þetta ekki einu sinni fréttnæmt. Geta þessir hælisleitendur stundað þetta óáreittir, sama hversu oft þeir eru teknir??? Það á bara að taka hart á þessu og vísa þeim úr landi með það sama. Með því að reyna þetta eru þeir að segja AÐ ÞEIR HAFI ENGAN ÁHUGA Á AÐ VERA HÉR OG ÞÁ GETA ÞEIR BARA FARIÐ ÞANGAÐ SEM ÞEIR VORU ÁÐUR.
Það er verið að "púkka" upp á svona vesalinga en á sama tíma á að henda stúlku úr landi, sem er í kokkanámi og er síður en svo byrði á Íslensku samfélagi. Væri ekki full ástæða til að ALLSHERJARNEFND fundaði um ÞESSI MÁL? Það er sitthvað sem virðist vera að í málefnum útlendinga og hælisleitenda. Var ekki einhver að tala um forgangsröðun??????"
Útlendingalögin hennar Unnar Brár og fleiri heimila þessu liði hverskyns lygar og falsanir án þess að þeim sé refsað fyrir. Er þau lög óumbreytanleg að mati Sjálfstæðisflokksins?