Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Nú á að taka Bjarna í bakaríið

$
0
0

fyrir að hindra hina hvítu riddara réttlætisins, Jóhannes Kr.Kristjánsson og Jón Traustason  í að birta þjófstolin gögn frá Glitni. 

Jóhannes Kr., riddarinn hugumprúði úr Sigmundarmálum, vill að venju hafa fullt frelsi til að stela því sem honum sýnist, svíkjast að þeim sem honum hentar og ljúga því sem honum passar. Það er ekki spurt að neinu þegar þessi dánumaður á í hlut.

Allt fjölmiðlafrelsi heimsins er bókstaflega undir, frá Snowden,  Manning, Assange og Wikileaks. Bara ef hægt er að láta Bjarna Benediktsson og Sjálfstæðisflokkinn líta illa út. Verjendur barnaníðinga, Panamasvindlarar og Sjóðsníufélagar skulu teknir og afhýddir. Þá verður réttlætinu fullnægt og kosningunum hagrætt.

Og Kári klári sér svo um framhaldsþáttinn um Sigmund Davíð í Fréttablaðinu. Allir búnir að gleyma hlutabréfadollurum sem gufuðu upp í Panama.

Já nú á aldeilis að taka Bjarna í bakaríið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922