Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Hverjir eiga eftir að borga meira?

$
0
0

Hverjir eru þeir sem eiga að borga 70 milljarðana sem frú Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri Grænna  ætlar að ná í til samneyslu landsmanna með aukinni skattheimtu?

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. upplýsti frú Katrínu Jakobsdóttur formann Vinstri grænna, um það sem henni virtist ókunnugt um, að öll fyrirtæki landsmanna, stór og smá,  greiða núna 70 milljarða í opinber gjöld  Hann spurði frú Katrínu hverjir  það verði sem eigi að borga meira?

Heyrði einhver hverju frú Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri Grænna svaraði? Skildi einhver svarið?

Það væri heldur ekki úr vegi að formaður Framsóknarflokksins Sigurður Ingi og formaður Samfylkingarinnar Logi  ómökuðu sig við að svara þessari spurningu þar sem þeir komu báðir með mikil fyrirheit um aukin ríkisútgjöld.

Hverjir eru þeir sem eiga eftir að borga meira?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922