Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Lífeyrissjóðakerfið er að drepa okkur

$
0
0

Í alvöru er  lífeyrissjóðakerfið okkar orðið að ríkissósíalisma. Mál þar sem Nomenklatúran í stjórnum lífeyrissjóðanna er farin að stjórna öllu efnahagslífi Íslands.

Hún forvaltar öll stærstu fyrirtækin og stjórnar gengi þeirra og verði á markaði. Lífi eða dauða þess sem þeir kjósa, samrunum og einokun. Það er ekkert eftir fyrir aðra í íslensku efnahagslífi en stórkapítalið sem þeir stjórna og fara með sem eigin eign í sús og dús fyrir sjálfa sig.

Sukka blygðunarlaust með 17 milljarða af eign launþeganna sem þeir taka í stjórnunarkostnað fyrir sig og sína.  Botnlaus spilling fyrir opnum tjöldum vegna sauðsháttar fólksins sem er ekki farið að skilja neitt í því hvert stefnir.

Sósíalismi og ríkiskapítalismi að hætti Sovétríkjamna er það sem hér er að verða að veruleika að óbreyttu.

Ókosin Nomenklatúra einhverra tuga fjölda óþekktrar elítu ríkir yfir öllu kapítali launþega og fer með það af fullkomnu ábyrgðarleysi ef tjón verða.  Aðeins launþegarnir sjálfir, eigendurnir, taka ábyrgðina á sig og allan skellinn með einfaldri lækkun lifeyris síns  ef illa fer meðan sjálftökufurstarnir í stjórnunum missa einskis í launum sínum eða fríðindum. Eins og hér varð í hruninu. Þá sátu launþegarnir einir uppi með nærri þúsund milljarða tap meðan furstarnir fengu kauphækkun.

Það verður að leggja þetta spillta kerfi af því það gengur ekki upp lengur . Það verður að  taka hér upp gegnumstreymiskerfi í Seðlabankanum þar sem hver launamaður á sína séreignarskúffu sem ríkinu verður óheimilt að stela úr eins og það hefur purkunarlaust gert frá tímum Steingríms Jóhanns erkiráðherra síðustu vinstristjórnar. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922