Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

"Stærðfræðingurinn"

$
0
0

Smári McCarthy sér um að kynna umheiminum íslensk stjórnmál:

Færsla Smára McCarthy á Twitter á ensku er svohljóðandi:

„Iceland's Jimmy Savile case: our PM, who was in the Panama Papers, has hid for two months his father's support for a pedophile's clemency.
8:02 PM - Sep 14, 2017“

Þetta útleggst á íslensku:

Íslenska Jimmy Savile málið. Forsætisráðherrann, sem var í Panama-skjölunum, hefur í tvo mánuði falið stuðning föður síns við miskunn yfir barnaníðingi."

Það þarf ekki langt yfir skammt að leita hverjir sjá umheiminum fyrir fréttum af Íslandi, Bjarna Benediktssyni og barnaníðingum.

Mikil fjárráð Pírata vekja einnig athygli margra. Hvaðan kemur þeim allt þetta fé? Frá fátækum stuðningsmönnum? Hefur ekki verið upplýst að eitthvað hafi komið frá Assange? Varla getur verið að George Soros hafi sent eitthvað?

Hefur nokkurntímann verið upplýst hver kom njósnatölvunni fyrir inni á Alþingi? Hefur "stærðfræðingurinn" Smári McCarthy svarað einhverju um það mál frekar en  Birgitta?.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922