Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Eigum við að láta kúga okkur til samúðar?

$
0
0

til samúðar?

Svo segir Moggi:

" Kær­u­nefnd út­lend­inga­mála hef­ur synjað níg­er­ísku hjón­un­um Sunday Iserien og Joy Lucky um end­urupp­töku á máli þeirra og þar með staðfest ákvörðun um að senda þau og átta ára gamla dótt­ur þeirra Mary úr landi og til Níg­er­íu. 

Frétt mbl.is: Segja dauðann bíða sín í heima­land­inu

Geng­ur í skóla í fyrsta sinn á æv­inni

Hjón­un­um barst synj­un­in í dag, en þau hafa búið hér á landi í eitt og hálft ár. Hingað kom fjöl­skyld­an í leit að betra lífi eft­ir að hafa upp­lifað of­beldi, fá­tækt, hót­an­ir og gríðarleg áföll í heima­land­inu og á Ítal­íu þangað sem þau flúðu fyr­ir níu árum. Þar var Joy fórn­ar­lamb man­sals, en Sunday hafði upp­lifað póli­tísk­ar of­sókn­ir í heima­land­inu.

Hér á landi líður þeim vel, eins og fram kom í viðtali við þau á mbl.is í síðasta mánuði, þar sem þau sögðust jafn­framt upp­lifa ör­yggi í fyrsta sinn í ára­tug. Sunday hef­ur starfað hjá sama bygg­inga­fyr­ir­tæki síðastliðið eitt og hálft ár, og Joy hef­ur sótt ís­lensku­nám­skeið og kirkju hér á landi. Þá geng­ur Mary í skóla í fyrsta sinn á æv­inni. Hér líður henni vel og hef­ur náð góðum tök­um á ís­lensku. Hún er fædd á Ítal­íu og hef­ur aldrei búið í Níg­er­íu.

Frétt mbl.is: Stúlk­urn­ar „svipt­ar sín­um rétti“

Biðluðu til al­menn­ings

Hjón­in biðluðu fyrr í sum­ar til al­menn­ings og stjórn­valda að skoða málið og leyfa þeim að vera áfram hér á landi, en þau segja dauðann bíða sín í heima­land­inu. Þá voru und­ir­skrift­ir 2.500 Íslend­inga af­hent­ar full­trúa dóms­málaráðuneyt­is­ins fyrr í mánuðinum, þar sem þess var kraf­ist að mál fjöl­skyld­unn­ar yrði end­ur­skoðað.

Þeir sem hafa kynnst hjón­um við nám og starfi bera þeim góða sög­una, og segja þau standa sig af­burða vel. 

Joy er þó illa far­in á sál og lík­ama vegna reynslu sinn­ar. Hún glím­ir við und­ir­liggj­andi and­leg veik­indi og hef­ur hrakað mjög mikið á sein­ustu vik­um og mánuðum. Nú ný­lega var henni vísað á bráðadeild og hef­ur hún hlotið aðhlynn­ingu þar, og er í áfram­hald­andi meðferð.

Frétt mbl.is: Vita ekki hvenær brott­vís­un fer fram

Rétt­ur barna oft brot­inn

Þá hef­ur fjöl­skyld­an fundað með umboðsmanni barna þar sem fram kom að embættið teldi að í mál­um sem þess­um væru rétt­indi barna oft brot­in þegar rétt­ur þeirra til að tjá sig væri sniðgeng­inn. Ekki væri hægt að ákv­arða um hags­muni barna eða hafa þá að leiðarljósi ef sjón­ar­mið þeirra væru ekki tek­in til greina.

Í nýj­um út­lend­inga­lög­um seg­ir í 25. gr. að hags­mun­ir barns skuli hafðir að leiðarljósi. Barni sem myndað get­ur eig­in skoðanir skuli tryggður rétt­ur til að tjá sig í máli sem það varðar og tekið skuli til­lit til skoðana þess í sam­ræmi við ald­ur og þroska.

„Við málsmeðferð fjöl­skyld­unn­ar er því haldið fram af hálfu stjórn­valda að þau hafi það sem bestu [sic] fyr­ir Mary að leiðarljósi en það get­ur ekki staðist skoðun að það sé barni fyr­ir bestu að vera rifið upp með rót­um og flutt til lands þar sem það hef­ur aldrei búið, og framtíð þess er ekki tryggð. Fjöl­skyld­an átti fund með embætti umboðsmanns barna sem hef­ur lýst yfir áhyggj­um sín­um af mál­efn­um barna sem óska eft­ir vernd hér á landi,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá No Bor­ders Ice­land vegna máls­ins.

Tengsl við landið virt að vett­ugi

Seg­ir þar jafn­framt að litið hafi verið fram hjá því með öllu að Joy og fjöl­skylda henn­ar eigi enn þá á hættu að sæta of­sókn­um af hálfu þeirra sem seldu hana í vændi fyr­ir hart­nær ára­tug. „Vísað er til þess að hún geti leitað til yf­ir­valda þar í landi en marg­vís­leg­ar skýrsl­ur benda til þess að yf­ir­völd séu ým­ist ekki hæf eða of spillt til að tak­ast á við slík mál og að íbú­ar lands­ins treysti ekki yf­ir­völd­um fyr­ir slík­um mál­um. Þá hafa tengsl fjöl­skyld­unn­ar við landið einnig verið virt að vett­ugi.

Fjöl­skyld­an var með gilt dval­ar­leyfi á Ítal­íu þegar þau komu hingað, vegna reynslu Joy og aðstæðna þeirra. Þau ákváðu að yf­ir­gefa Ítal­íu vegna stöðugra hót­ana samlanda Joy sem standa að baki man­sali og vonuðust til að Ísland yrði friðsælli staður."

Konan er ekki nígerísk heldur Ítali. Hver segir að hún segi satt?

Það eru milljónir manna sem geta sagt okkur sögur og vælt í okkur. Þau eru bara búin að fá að vera hér allt og lengi vegna okkar eoigin ræfildóms. Auðvitað má vorkenna öllum sem eiga bágt. En á þetta fólk svo bágara en allt annað að það megi kúga okkur til samúðar?

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922