er það virkilega ónýtt?
Eins og það er fallegt Vesturhúsið og bæjarprýði.
Hvernig er það, þarf mygla ekki raka til að þrífast? Getur komið mygla í þurrt hús? Kemur ekki allstaðar allstaðar mygla þar sem er raki og engin loftræsing?
Er ekki hægt að hita húsið, þurrka það upp og blása út rakanum?
Á ég að trúa því að ekkert sé hægt að gera nema fyrir milljarða? Á ekki Orkuveitan nógan hitakraft og rafmagn?
Mér finnst alveg ófært að þetta fallega hús sé bara dæmt ónýtt. Þegar Dagur B. seldi það gæðingum sínum og gróðapungum alfarið með belti og axlaböndum á ábyrgð Orkuveitunnar fyrir örfáum árum, var þá ekki allt í lagi og úttekið? Hvað breyttist svona skyndilega? Af hverju á Orkuveitan bara að borga fyrir hús sem hún á ekki? Hvaða viðskiptaséní sáu um söluna? Ekki Alfreð Þorsteinsson að minnsta kosti, svo vitlaus er hann ekki einu sinni. Þurfa þeir ekki að svara fyrir sína afleiki?
Come On. Eigum við að gleypa allt hrátt sem þetta vinstra lið segir um Orkuveituhúsið?