Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Haraldur Benediktsson

$
0
0

bóndi og formaður fjárlagganefndar var á Útvarpi Sögu með Magnúsi Þór Hafsteinssyni stjörnurithöfundi og fiskifræðingi.

Þar kom fram að Haraldur telur sjálfsagt mál að hætta að innheimta gangnagjöld af Hvalfjarðargöngum. Ekkert annað sé í salnum eins og hann orðar það.

Í síðasta mánuði fóru rúmir 300.000 bílar um göngin. Ætli tekjur af því hafi ekki numið einum 200 milljónum?

Í sama viðtali telur Haraldur að grafa þurfi önnur göng við hlið þessara. Af hverju er þá svona sjálfsagt að fella niður gjaldið strax? Mun ekki þurfa veggjald í næstu göngum? Hvar á að taka peninga fyrir þeim? Myndi ekki gjaldið af þessum göngum næstu ár fara langt í að borga kostnaðinn af greftri nýrra ganga? Af hverju á þá að hætta innheimtunni? Hvað með rekstrarkostnaðinn? verður ekki að borga í báðar áttir eins og núna þegar ný göng koma? Hversvegna hugsar Haraldur svona þröngt út frá sveitarhagsmunum? Svo segir hann að landsbyggðarpólitík sé bara samgöngumál? Hvað segja Seyðfirðingar um göng undir Fjarðarheiði? Hvar á að taka peninga fyrir þeim?

Á sama tíma veltir Haraldur fyrir sér tillögum Jóns Gunnarssonar um önnur veggjöld? 

Hvervegna er Haraldur Benediktsson svona sannfærður um að það eigi að fella niður gjald í Hvalfjarðargöngum?

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922