setur stefnuna á Borgarmálin. Hún segir umbúðalaust að fjármagnið sem átti að fara í Borgarlínuna fari í byggingu íbúða. Þarna ætlar hún að efna loforð Dags frá síðustu kosningum um 2500 íbúðir. Hvað segja nú meðreiðarsveinar Dags B. í hinum sveitarfélögunum? En Inga ætlar að bjóða fram þar líka. Hó, hó.
Dagur fær þarna björgun frá gömlu kosningaloforðum sínum úr óvæntri átt. Hann fær hugsanlega að klippa á borðana í samstarfi við Ingu þar sem hann stefnir ótrauður á endurkjör sem Borgarstjóri. Hó, Hó!
Íhaldið hefur ekki fundið neinn kandídat á móti honum ennþá en ætlar að finna hann og skipa honum aðstoðarmenn handvalda. Guðfinna ætlar að velta Sveinbjörgu svo að friðurinn virðist úti á Framsóknarheimilinu.Hó, Hó!
Því meiri ástæða er til að fagna svona afdráttarlausri yfirlýsingu frá Ingu Sæland.Hó, Hó!
Hún er á móti þéttingu byggðar og vill ný hverfi. Hún vill að einkabílnum og gatnakerfinu verði sinnt. Hó, Hó!
Svo er Inga áreiðanlega með puttana í Reykjanesbæ þar sem á að reisa fjölda leiguíbúða án hagnaðar. Hó, Hó!
Það er gott til þess að vita að það eru hreyfingar í bæjapólitíkinni þó að lognasamt sé í landspólitíkinni.Hó,Hó!
Þökk sé Ingu Sæland. Hó,Hó!