Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Hversvegna?

$
0
0

er nánast önnurhver auglýsing í blöðunum um nýja bíla? 

Hafa auglýsendur ekki heyrt um að meirihlutinn í Borgarstjórn Reykjavíkur vill alls ekki bíla? Vill ekki nýjar götur fyrir bíla? Vill heldur þrengja núverandi götur heldur en að leggja nýjar akreinar sem myndu líklega fyllast samstundis af bílum eftir því sem Hjálmar Sveinsson hefur upplýst?

Eru þessir kaupahéðnar í bílaumboðunum að lýsa yfir því að þeir telji ekki liklegt að þessi stefna verði kosin til sigurs í næstu Borgarstjórnarkosningum að ári? Að það verði breytingar á stefnunni í skipulagsmálum og einkabílsstefnunni muni vaxa fiskur um hrygg?

Hvað kemur þá sveitarstjórnarmönnum í nágrannabyggðum Reykjavíkur þá til þess að láta Dag Borgarstjóra og Hjálmar skipulagsfræðing hans teyma sig í spekúleringum um einhverja Borgarlínu sem mun kosta hátt í hundrað milljarða þegar allt æpir á fjármagn í önnur verkefni?

Borgarlína verður aldrei lögð enda ein sú vitlausasta af mörgum vitlausum hugmyndum sem fram hafa komið frá þessum núverandi meirihluta í Reykjavík.

Hversvegna?

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922