Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Fjölga innflytjendum?

$
0
0

er það lausnin?

Svo segir í Mogga:

"

Fæðing­um á Íslandi fækkaði veru­lega árið 2015 miðað við árið á und­an. Árið 2015 fædd­ust 4.098 börn hér á landi en árið áður fædd­ust 4.363 börn. Þetta kem­ur fram í skýrslu Fæðing­ar­skrán­ing­ar á Íslandi.

Fæðing­ar voru alls 4.026 árið 2015 en árið 2014 voru fæðing­arn­ar  4.292. Sam­kvæmt skýrsl­unni fækk­ar fæðing­um alls staðar á land­inu, nema á Ísaf­irði og í Nes­kaupsstað.

Árið 2015 voru áætlaðar fæðing­ar á 8 stöðum á Íslandi. Auk þess fæddu þrjár kon­ur á leið á fæðingastað.

Land­læknisembættið hef­ur yf­ir­um­sjón með fæðing­ar­skrán­ing­unni sem er staðsett á kvenna­deild­um Land­spít­ala.

Fæðing­um fækkað mikið frá 2009

Alls fædd­ust 3.105 börn á kvenna­deild Land­spít­al­ans í Reykja­vík, eða rúm 75% allra barna. Næst­flest börn fædd­ust á sjúkra­hús­inu á Ak­ur­eyri, eða 381 barn, og þar á eft­ir kem­ur sjúkra­húsið á Akra­nesi með 259 börn.

Ekki hafa jafn fá börn fæðst hér á landi síðan árið 2002 en þá fædd­ust 4.070 börn. Fæðing­um á Íslandi hef­ur fækkað mikið frá 2009 en það ár fædd­ust 5.015 börn og hafa aldrei fæðst fleiri börn á Íslandi en á því ári, að því er kem­ur fram í skýrsl­unni.

Meðal­fjöldi fæðinga síðasta ára­tug (2006-2015) er 4.482 á ári.

Landspítalinn við Hringbraut.
Land­spít­al­inn við Hring­braut. mbl.is/â€Sig­urður Bogi Sæv­ars­son

Ein kona fæddi þríbura en 70 fæddu tví­bura

Tíðni keis­ara­sk­urða á Íslandi var 16,3% árið 2015 og tíðni áhalda­fæðinga 7,7% . Tíðni burðar­máls­dauða var 3,7/â€1000 fædd börn, þegar öll börn fædd and­vana eft­ir 22 vikna meðgöngu/â€500g fæðing­arþyngd eru tal­in með.  

Fjöl­burafæðing­ar voru 71 á land­inu öllu árið 2015. Tví­burafæðing­ar voru 70 og ein kona fæddi þríbura. Börn­in voru því sam­tals 143. Flest­ar fjöl­burafæðing­ar voru á Land­spít­ala eða 66. Fjór­ar kon­ur fæddu tví­bura á Ak­ur­eyri. Hlut­fall fjöl­burafæðinga af öll­um fæðing­um á land­inu hef­ur hald­ist nokkuð stöðugt und­an­far­inn ára­tug, eða 1.7%, sam­væmt skýrsl­unni. 

Hlut­fall tví­bura, sem fædd­ust eft­ir gla­sa­frjóvg­an­ir var 21,1%. Þannig fædd­ust 15 tví­bur­ar með tækni­frjóvg­un. Er þetta mjög svipað hlut­fall og fyr­ir árið 2014.

Árið 2015 var tíðni keis­ara­sk­urða á Íslandi 16,3% sem er rétt ofan meðaltals síðustu 10 ára (15,9%) og einnig hærri en síðustu 5 ár.

Alls fædd­ust 74 börn í heima­húsi árið 2015, þar af voru 65 fyr­ir­fram ákveðnar heima­fæðing­ar. Átta kon­ur fæddu óvænt heima og ein kona fæddi án aðstoðar heil­brigðis­starfs­fólks að eig­in vali. Hlut­fall heima­fæðinga er 1,8% af öll­um fæðing­um á Íslandi á ár­inu 2015 sem er svipað hlut­fall og það hef­ur verið frá ár­inu 2009."

Er það ekki stefna ríkisstjórnarinnar að snarfjölga innflytjendum og flóttamönnum?

 

En ef það er til þess að leysa vanda atvinnulífsins hversvegna í ósköpunum erum að að heimta að þeim séu borguð sömu laun og innfæddum? Ekki borga Kanar ólöglegum innflytjendum sömu laun að því maður heyrir? Ekki eru indverskum stýrimönnum á íslenskum skipum borguð íslensk skipstjóralaun. Íranskur verkamaður sem flýr hingað á auðvitað að fá írönsk laun en ekki íslensk. Af hverju heimtar Gylfi annað? Ber hann ekki þjóðarhag fyrir brjósti?

Hver er þá annar tilgangur í því að fjölga innflytjendum en að græða á því?

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922