Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Hvað myndi hún kaupa sér?

$
0
0

reglusama einstæða móðirin með tvöhundruðþúsund króna mánaðarlaun í leiguhúsnæði ef við gætum rétt henni annað eins í mánaðarstyrk?

1.Áskriftarmiða í borgarlínuna væntanlegu?

2.Hjólhest?

3.Bíl?

Hvernig myndi hún verja peningunum til þess að þeir sköpuðu henni og barninu hennar aukin lífsgæði.

Ef Dagur Bergþóruson og Hjálmar Sveinsson ættu að velja fyrir hana yrði bíll líklega ekki fyrir valinu.

Það hefur hvarflað að mér hvernig þessum mönnum yrði tekið, ef þeir reyndu fyrir sér  í pólitík hér í Orlando? Hér buna  þoturnar stanslaust niður il borgarinnar troðfullar af dollurum. Hér streyma bílarnir efir ótrúlega flottu vegakerfinu í þvílíkum fjölda að þeir virðast óteljandi. Stöku strætóar eru á ferð og út úr þeim kemur greinilega fátækasta fólkið. Allstaðar notaðir bílar skítbillegir til sölu.Bensínið kostar minna en hundraðkall. 

Hvernig skyldi standa á því að menn sem eru uppi á 21.öld skuli ekki sjá það að nútíminn gengur á samgöngum og bílaumferð. Hann gengur á bílnum sem er það  farartæki sem nútímamaðurinn hefur valið sér ef hann hefur ráð á því.Hraðtenging við umhverfið því að tíminn skiptir máli á þessari öld.

Nútímamaðurinn hefur líka valið flugið sem fararmáta til aða brúa lengri vegalengdir en hentugar eru með bílnum einum. Allt viðskiptalífið beinist að því að tengjast og geta komist að uppsprettum fjármagnsins á sem stystum tíma. Því tímarnir eru peningar og peningar eru undirstaða lífshamingjunnar eða í versta tilfelli það sem verndar lítilmagnann frá óhamingjunni.

Hvaða foreldri myndi ekki velja það frelsi fyrir sig og barnið sitt til þess að komast út úr skarkalanum þegar þannig stendur á og geta verið fljótt í förum milli leikskóla og íþróttavalla á einkabíl sínum?

Hjólhestur Hjálmars né Borgarlína Dags Bergþórusonar, leysir þær þarfir aldrei af hólmi. Hreint afturhald nátttrölla á Neonljósaöld sem halda að hægt sé enn að lýsa upp heiminn með grútarlömpum þegar annað er fyrir löngu  í boði.

21.öldin er bara ekki þannig.  Hún byggir á einkabílnum sem er fararskjóti nútímans hvort sem er í Ameríku eða á Íslandi.Hún byggir ekki á sveimhugum sem virðast ekki hafa heyrt um það hvernig heimurinn hefur breyst á hundrað árum.

Ég held að unga einstæða móðirin myndi kaupa sér bíl hefði hún ráð á því hvað sem Hjálmar eða Dagur myndu vilja að hún gerði annað.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922