"„Þessi ákvörðun er eins og sprengja inn í samningaviðræðurnar,“ segir Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfsmanna í Straumsvík.
Tilefnið er ákvörðun Rio Tinto að engar launahækkanir verði á þessu ári hjá fyrirtækinu, sem rekur og á álverið í Straumsvík, nema um það sé kveðið í lögum eða sérstaklega um hækkanir samið.
„Áhrif þessarar ákvörðunar ná langt út fyrir starfsemina í Straumsvík. Þetta getur haft alvarleg áhrif á allt íslenskt samfélag en núna reyna aðilar vinnumarkaðarins að semja á grundvelli svo kallaðs SALEK-samkomulags um ákveðna hækkun á næstu árum. Ég sé ekki hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að ganga að samkomulagi meðan starfsfólk í álverinu í Straumsvík er múlbundið við ákvörðun Rio Tinto og mun ekki njóta sömu kjarabóta og annað starfsfólk á hinum almenna vinnumarkaði,“ segir Gylfi í Morgunblaðinu í dag."
Svo segir í Mogga í dag.
Innlegg Rio Tinto í kjaraviðræður í Streumsvik er ótvírætt.
"Ég sé ekki hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að ganga að samkomulagi meðan starfsfólk í álverinu í Straumsvík er múlbundið við ákvörðun Rio Tinto og mun ekki njóta sömu kjarabóta og annað starfsfólk á hinum almenna vinnumarkaði,“
Solidarnoz!
Líklega vita allir hvernig Rio Tinto kemur að þessari ákvörðun. Gylfi hugsanlega líka.
Það hlýtur að vera fagnaðarefni ef engar kauphækkanir verða í landinu á meðan Rio Tinto heldur Gylfa í skák. Þá myndi virkileg lífskjarasókn hefjast í landinu. Gengi krónunnar myndi hækka, verðlag lækka, fjármagn myndi streyma til landsins og ný fyrirtæki myndu spretta upp. Þensla myndi aukast og launaskrið myndi hækka raunlaun vinnandi fólks.Fólk flytti heim frá útlöndum.
( PS: Annað mál er að Íslendingar myndu líklega fljótt missa stjórn á sjálfum sér og hér færi allt til andskotans í góðærinu og hver kenna öðrum um. Aðeins Rio Tinto myndi standa sem klettur úr hafinu. Ljósmæður, læknar, lögregla og aðrir ríkisstarfsmenn myndu þá höggva á hnútinn og gera verkfall sem myndi leiða þjóðina örugglega frá stöðugleikanum til aukinnar og þjóðlegrar verðbólgu. Álverið yrði láglaunasvæði þar til að álverð myndi annaðhvort hækka verulega eða álverinu yrði lokað. Stóraukinn innflutningur múslímska flóttamanna myndi svo já landsmönnum fyrir nægum deiluefnum og vinstri mönnum fyrir efni í lærðar greina í Fréttablaðinu)
Eru aðrir kostir í stöðunni en að reyna að setja skákina í bið?
Það er skák!