Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Langavitleysan

$
0
0

á Miklubrautinni er ekki að fara að leysast.

Starfshópurinn sem Hjálmar skipaði til að lækka hámarkshraðann er búinn að ná lýðræðislegri niðurstöðu. 2 á mót 1 samþykkja erindi Hjámars bókmennta-og skipulagsfræðings um að eyða tugmilljónum í blikkljós til að lækka hraðann.Hver bíll verður lengur á brautinni og reykir meira.

Skólakrakkarnir fá áfram að leika sér á gangbrautarljósunum tveimur á brautinni R-listans og horfa á hvernig umferðin stöðvast vestur í Háskóla. Flestir sjá hvað myndi gerast ef þarna væru göngubrýr yfir en ekki borgarstjórnin.Minnihlutamaðurinn í starfshópnum lagði auðvitað til að byggja brýr en sleppa blikkljósunum. En það var auðvitað ekki á það hlustað hvað þá á það að ferðatíminn muni lengjast með lækkun hámarkshraðans. Enda býr auðvitað ekkert annað að baki en að hrekkja bíleireigandann og fá hann til að fá sér hjólhest. Um að gera að skemma og eyðileggja sem mest og framleiða vitleysur. Þetta kusu Reykvíkingar yfir sig og fá að njóta í meira en ár til viðbótar.

Líklega hefur hvergi á Íslandi setið önnur eins afturhaldsstjórn heldur en núverandi borgarstjórn. Borgarstjórinn tilkynnir og tilkynnir um að hann ætli að byggja nýjar íbúðir og RÚV birtir af honum myndir við þau tækifæri. En ekkert er byggt og engar lóðir eru heldur til. Skyldi kjósandinn falla fyrir þessu? 

Langavitleysan á Miklubrautinni við Lönguhlíðina heldur áfram.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922