Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Trump er trompið

$
0
0

í heimspólitíkinni um víða veröld. Sá tími sem kratastrumpar og kommatittir geta vaðið uppi og logið að alþýðu um að þeir hafi kökur á himnum að færa því ef það sé bara þolinmótt og trúi þeim er að líða.Enda grætur elítan ESB yfir þessu og skilur ekki af hverju fólk vill ekki styrki frá sambandinu alveg eins og Viðreisn hérna.

Líklega munu bæði Geert Wilders og Marine LePen vinna sigra í sínum löndum og áhrif Farage fara vaxandi í Bretlandi þrátt fyrir þá hörmulega niðurstöðu sem hann hlaut í kosningum að fá aðeins einn þingmann út á fimmtung atkvæða. Hann var ekkert að efna til mótmæla og uppþota eins og venjulega vinstriðgerir.Fyrir honum er kerfið bara svona.Eins og hjá Trump er stjórnarskráin svona.

Þegar rykið sest þá er Trump ekkert að gera neitt óvenjulegt með því að fresta koma tiltekinna hópa til Bandaríkjanna.Margir Forsetar hafa gripið til þessa ráða án þess að varanlegur skaði hafi af hlotist.Trump er bara maður sem stendur vioð orð sín en er ekki bara með slagorðakjaftæði eins og við eigum að venjast af kratastóðinu.

Það er hinsvegar skömm fyrir Ísland sem lýðræðisþjóð að ótíndar þingstelpur skuli geta kallað Bandaríkjaforseta fasista úr ræðustól Alþingis óátalið.

Svona talsmáti varðar við gildandi íslensk lög þó þau séu yfirleitt aldrei látin ná yfir kommatitti síðan Þórberg leið. En skömm þessara óuppdregnu stelpukinda er söm fyrir því  og loðir við Alþingi Íslendinga. Öðru máli gegnir ef innhringjandi á Útvarpi Sögu er með hommakjaft. Þá skal Pétur straffaður fyrir hatursorðræðu í Hæstarétti af því að kratar taka það til sín.

Pólitíkusar á Vesturlöndum eru óðum að átta sig á því, að það verður að stemma stigu við innrás múslíma. Við getum ekki haldið áfram að láta sem Rússland komi okkur við því þeir séu bara óvinir. Þeir eru í okkar heimshluta og eiga við sömu vandamál að stríða. 

Trump er pólitíska trompið sem mun laga til um víða veröld.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922