Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

"Vistvænn viðbjóður"

$
0
0

blasti við manni úr hænsnahúsum Brúneggja á Teigi og á Stafholtsveggjum. 

Allt sem stendur á umbúðunun frá þessum framleiðanda virðist vea lygi á lygi ofan. Og fyrir þetta er maður látinn borga 40 % meira af því að maður hefur séð viðbjóðinn í verksmiðjubúunum þar sem hænunum er þjappað í kassa og látnar verpa þangað til þær drepast í skítalykt og vanþrifum. Sjónvarpið ætti að heimsækja þessi bú og sýna fólki hvernig ástandið er þar. Þá myndi einhver hugsa sitt ráð. Þessvegna var maður að kaupa brún egg frekar en þau hvítu þó þau kosti þetta meira.

Maður passaði frjálsar hænur í sveitinni  sinni í æsku sinni og þótti vænt um þessa fugla og reyndi að fara vel að þeim. Aldrei hefði maður getað horft á þessa fugla fjaðralausa og tætta með brotna gogga eins og myndirnar sýndu vera samþjappaða yfir 30 fugla á fermetra í stað 6 eins og reglurnar segja og maður hélt að væri farið eftir. Nei, þessi lýður sem á þessi bú er greinilega samviskulaus og tilfinningalaus gagnvart lifandi verum. Hefðu einhvern tímann verið kallaðir Drullusokkar eigi einhverjar þá nafnbót skilið.

Þarna blasti sannleikurinn við þar sem samviskulausir snákaolíukaupmenn og dýraníðingar brjóta allar reglur, ljúga og falsa skýrslur til að græða meira.

Ætti svona fólk ekki skilið að vera dæmt í nálgunarbann við hænur? Eiga þeir bara að halda áfram iðju sinni og ljúga og svíkja og kvelja ómálga dýr? Og auðvitað er opinbera eftirlitið einskis virði fyrir hænugreyin þar sem það er uppteknara í kjarabaráttu starfsfólksins heldur en að vera í vinnunni.

Ég hélt í barnaskap  mínum að hænurnar þeirra sem verpa brúnu eggjunum hefðu það gott eins og hænurnar mínar í sveitinni minni, verptu í hreiður og fengju að hlaupa um frjálsar og þriflegar. Ég veit hvernig aðbúnaður verksmiðjuhænanna er. Mannúðlegt er það fráleitt heldur bara viðbjóðslegt að sjá. Þessvegna keypti ég brúnu eggin af samúð með hænunum.

En það var þá allt lygi sem á grænu kössunum stóð. Engin hreiður, ekkert frelsi. Allt svikið, logið og falsað. Jafnvel skýrslurnar til eftirlitsins voru upplognar.Opinbert skjalafals hefði einhver sagt.

Hvenær get ég farið að treysta þessu fólki aftur eftir að hafa verið blekktur til að kaupa þennan "vistvæna viðbjóð" í graænu kössunum?

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922