Valgerður Bjarnadóttir, Ólína Kérúlf og Birgitta Jónsdóttir og fleiri stjórnarandstæðingar sameinuðust um að draga Alþingi Íslendinga niður í svaðið í dag. Einkum var hýstería þeirrar fyrstnefndu áberandi. Þetta fólk leggst í vörn fyrir gerðir Steingríms J.í hruninu og finnur því allt til foráttu að ræða þær.Kalla það ofsóknir á hendur aumingja Steingrími að vilja aðeins ræða þetta mál.
Er þetta ekki sama fólkið sem fannst allt í lagi að ráðast á Geir H. Haarde og draga hann fyrir dóm til harðra refsinga? En þegar á að ræða þátt Steingrímur Jóhanns, sem var þá með krókódílstárin á hvarmi og sorg í hjarta að blása til Geirshríðar, þá verður allt vitlaust.
Það eina sem mér fannst athyglisvert í þessum farsa er að mér finnst Helgi Hjörvar með sitt virulega skegg vera orðinn mjög líkur Fídel Castro, einkum í prófíl. Kannski að Hollywood gæti nýtt sér þetta og Þingkonurnar gætu þá hugsanlega fengið hlutverk sem hysterískar grátkonur að fagna byltingunni er þær hverfa til annarra starfa?