kosningastjóra Vinstri Grænna birtast í málgagni vinstrimanna í dag. Fyrirsögnin er segðu satt Bjarni.
Fyrirsögnin er táknræn vegna þess að í greininni er helst ekki eitt einasta satt orð.
Hið fyrsta er að Bjarni er til vandræða hógvær, sannsögull og lélegur í að hrósa sjálfum sér og flokki sínum af því sem vel hefur verið gert. Hvað þá að segja nægilega oft endurtekinn sannleikann um viðskilnað kommanna eftir að þeir höfðu framlengt kreppuna um 2 ár í það minnsta með delluráðstöfunum sínum. En þeir tóku við ríkissjóði nær skuldlausum sem kunnugt er eftir áralanga fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins í félagi við aðra.
Auk þess sem þeir slösuðu hundruð fjölskyldna fjárhagslega til ólífis þegar Steingrímur Jóhann,(æðsti strumpur VG) gaf erlendum vogunarsjóðum íslensku bankana vesgú og sagði þeim að rukka 700 milljarða af þeim verst settu í botn. En ríkistjórn Geirs Haarde og Samfylkingarinnar hafði ákveðið að afskrifa helminginn af þeirri upphæð vegna misgengisins. margt af þessu fólki er farið úr landi og kemur hingað aldrei aftur. Svo æstist hann upp með fettum og brettum þegar Sigmundur og Bjarni sögðust myndu minnst ná 500 milljörðum til baka af fé vogunarsjóðanna til ríkissjóðs og gerðu það.
Sami Steingrímur lagði ofuráherslu á að borga Icesave og leggja þar með hundruð milljarða af erlendum skuldum óreiðumanna á herðar íslensk almennings. Handlangarar hans úr Háskólanum spáðu hér Kúbu Norðursins og Kjarnorkuvetri ef ekki yrði borgað.
Forsetinn skaut málinu til þjóðarinnar sem sendi það út í hafsauga og dómstólar ESB staðfestu síðan að engin laga-né réttarleg innistæða hefði verið fyrir kröfum Breta og Hollendinga um greiðslur.
Þrátt fyrir þessa tjörgun, fiðrun og rassskellingu þenja bæði hann og svona málpípur eins og þessi Kolbeinn sig og demba hverri rangfærslunni annarri fáránlegri yfir fólk.
Svikahrapparnir í VG(sem Gunnar Rögnvaldsson líkir við melónu sem er græn að utan en yfirgnæfandi stútfull af rauðu gumsi að innan) lofuðu hátíðlega og sóru og sárt við lögðu að því að þeir vildu ekki ganga í ESB, sviku það loforð svo kirfilega áður en haninn gól þrisvar, að ekki mátti á milli sjá hver bæri æstari ESB-sinni, heilög Jóhanna(sem var ráðherra í hrunstjórn Geirs Haarde þó að Kolbeinn myndi ekki muna það)eða áðurnefndur æðsti strumpur VG. Og viðtakandi formaður Katrín Jakobsdóttir þegir eins og Sfinxinn í Evrópumálum og ekki veit ég hvað hún myndi gera með ESB ef til stykkisins kæmi.
Það eina í grein Kolbeins sem nálgast sannleikann er að hann skrifar:"hefur Bjarni Benediktsson ekkert gert nema að skila svipuðum afgangi ár eftir ár." Og á við 200 milljarða viðsnúning vinstristjórnarinnar sinnum 4-5 eða um þúsund milljörðum betri afkomu ríkissjóðs en áður var.
Aumingja Bjarni minn að geta ekki komið þessu til skila svo að jafnvel fólk eins og Kolbeinn geti skilið. En það er líklega tilgangslaust að tala um sannleikann við slíkt fólk, það hefur alltaf sínar útgáfur.
Auðvitað þýðir lítið fyrir mjóróma bloggara eins og mig að reyna að flytja mál gegn Fréttablaðsstórveldinu og skríbenti þess Kolbeini sem getur endurtekið kommalygar sínar nógu oft til að þær verði að sannleika að hætti doktors Jósefs. En ég reyni nú samt.
En staðreynd efnahagsmála núna er sú sem menn geta borðið saman við andlátsár vinstristjórnarinnar:
Atvinnuleysi er horfið
Verðlag hefur haldist stöðugt um langt skeið
Hagvöxtur er með því mesta sem gerist á byggðu bóli
Launakjör almennings hafa batnað meira á undanförnum misserum en dæmi eru til um áður
Snúið hefur verið af braut hinnar tæru vinstri stjórnar og skattar verið lækkaðir, svo sem vörugjöld, VSK, tryggingagjald og tekjuskattur.
Verulegur afgangur er á viðskiptum við útlönd sem styrkir stöðugt gjaldeyrisstöðu þjóðarinnar
Ríkissjóður er rekinn með meiri afgangi en dæmi eru til, skuldir ríkissjóðs lækka sem og
vaxtaútgjöld
Með einurð og fumleysi hefur verið unnið að afnámi fjármagnshafta
Stórfelldar umbætur í húsnæðismálum hafa verið samþykktar sem ná bæði til þeirra sem leigja og þeirra sem vilja eignast eigið húsnæði.Núverandi ríkisstjórn leiðrétti verðtryggð húsnæðislán landsmanna eins og lofað hafði verið.
Breytingar á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna munu stórbæta hag námsmanna
Verulega auknum fjármunum er nú varið til heilbrigðisþjónustunnar, launakjör
heilbrigðisstarfsfólks hafa verið stórbætt, og bygging Landsspítala er komin á fullt skrið
Fleiri íslenskir ríkisborgarar flytja nú TIL landsins en flytja frá því http://kjarninn.is/skyring/
Bjartsýni landsmanna hefur sjaldan verið meiri http://www.vidskiptabladid.is/
Til þess eru vítin að varast þau. Hlustum ekki á Kolbein og kliðinn í kommunum.
ALDREI aftur vinstri stjórn
-né kommalygar Kolbeins