er fyrirtæki, www.heimkaup.is, sem ég ákvað að reyna að hefja viðskipti við í sóttvarnaskyni við pláguna.
Í stuttu máli fer maður á netið, velur úr vörutegundum og setur í körfu.Borgar með korti, velur heimsendingartíma og nýlenduvaran kemur í rauðum poka á tilsettum tíma. Ísskápar, reiðhjól og búsáhöld eru líka í boði, með 50.000 vörutegundum, en það hef ég látið vera.
Allt hefur staðið eins og stafur á bók hjá þessu góða fólki og það lætur sér annt um að spyrja hvort eitthvað hefði mátt betur fara.Næst fær maður síðustu pöntun upp á skjáinn og getur endurpantað og líka keypt nýtt á fljótlegan hátt.
Þetta er eins ljúft og það getur verið hjá Heimkaupum og ég er hæstánægður og vona að þeir fari að hætta að tapa ef ég er duglegur að kaupa.