Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Einbreiðar brýr

$
0
0

myndi kosta 14 milljarða að tvöfalda segir Vegagerðin. Þá er auðvitað ekki gert annað á meðan.

Ég spyr, hvað er að einbreiðum brúm?

Gult blikkljós varar menn við og það er engin teljandi töf af því að bíða eftir næsta bíl. En það er viðbjóður að búa við malarveg eins og liggur frá veginum að Flúðum og uppa að gömlu Tungufljótsbrú. Af einhverjum ástæðum hafa rútufyrirtækin tekið ástfóstri við að keyra þennan veg með þvílíkum jóreyk að það sjást ekki handaskil í móanum allan daginn. Ég vil mögum sinnum heldur bíða við einbreiðar brýrnar yfir Tungufljót heldur en að búa við rykkófið, steinkastið og þvottabrettin.

Þó að einhver ókunnugur útlendingur  hafi asnast til að keyra á fullri ferð inn á einbreiða brú  og framan á annan bíl, þá eru það léttvæg rök í málinu. Því í 99.9 % tilfella er þetta ekkert vandamál að sjá yfir og hafa samvinnu.

14 milljarðarnir eru betur komnir annarsstaðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922