Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Hinn beiski bikar

$
0
0

Icelandair er greindur í leiðara Harðar Ægissonar í Fréttablaðinu í dag.

Þar fer Hörður yfir þá stöðu sem félagið okkar er statt í. Það er umkringt forynjum gömlu verkalýðsfélaganna sem vilja heldur knésetja félagið en að gefa þumlung eftir af forneskju sinni. Verkalýðsfélög eru heilagar kýr hjá því fyrirferðarmikla fólki í forystu stéttarfélaga  sem ofbeldi beita við öll tækifæri. Ákvæði stjórnarskrár um rétt manna til að standa utan félaga eru fótum troðin í þjóðmálum og hafa lengi svo verið.

Hörður lýkur grein sinni svofellt:

"...Við þessar aðstæður eru allir nauðbeygðir til að taka á sig einhvern skell. Hluthafar hafa nú þegar tapað nánast öllu sínu og flugstéttunum, sem munu áfram njóta betri kjara en almennt þekkist hjá öðrum flugfélögum, er engin vorkunn að samþykkja aukið vinnuframlag.

Önnur flugfélög hafa fyrir margt löngu náð fram sambærilegum breytingum á kjarasamningum við sín stéttarfélög og Icelandair fer nú fram á. Sömu flugfélög, meðal annars Lufthansa, reyna nú að auka enn samkeppnishæfnina með betri nýtingu á flugáhöfnum en þau félög sem gera ekkert munu eiga erfitt um vik að ná viðspyrnu þegar kreppunni lýkur.

Með hliðsjón af slíkum aðgerðum annarra félaga er því ljóst að hugsanlegir fjárfestar að Icelandair munu spyrja sig hvort samkeppnisstaðan verði í raun óbreytt, jafnvel þótt kjarasamningar náist, og félagið enn einu skrefi á eftir sínum helstu keppinautum.

Samninganefnd Flugfreyjufélagsins hefur verið stutt áfram af forystu verkalýðshreyfingarinnar sem nýtir hvert tækifæri fyrir skemmdarverkastarfsemi.

Formaður ASÍ og VR, sem hafa hótað að beita sér gegn því að lífeyrissjóðirnir fjárfesti í Icelandair ef félagið semur við flugliða utan Flugfreyjufélagsins, segja ekki sjóðunum fyrir verkum. Ummælin eru skýrt merki um skuggastjórnun og hljóta að verða til þess að Fjármálaeftirlitið taki málið til skoðunar.

Lífeyrissjóðirnir, sem hafa umboðsskyldur gagnvart sjóðsfélögum, fjárfesta ekki í Icelandair nema á viðskiptalegum forsendum og með arðsemismarkmið að leiðarljósi. Einn liður í því er að styrkja rekstrarhorfur til frambúðar með hagræðingu í launakostnaði. Klukkan tifar."

Sú kúgunarstarfsemi sem ASÍ og verkalýðsfélögin hafa á oddinum gagnvart Icelandair, sem má í raun yfirfæra á íslenska samfélagið allt og heldur því í helgreipum eins og margsinnis hefur sannast, er alvarlegast hindrunin sem við er að eiga í alþjóðlegum samanburði efnhagslífs. Sá tími þegar verkalýðsbarátta var álitin nauðvörn fátæks fólks er löngu liðinn og við hefur tekið hrein ofbeldisstudd fákeppnisstarfsemi sem alþjóðleg orð ná yfir.

Heldur ekki neitt flug heldur en að okkar völd séu rýrð er hinn beiski bikar þjóðar í skugga COVID19.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922