eru ekki þeir sem spýja mest út af því sem vísindamennirnir Katrín Jakobsdóttir og Gréta Thunberg óttast mest: CO2
Hér eru gamlar tölur um bílana:
Allt bílaeldsneytið eru kannski 400.000.000 lítrar á ári og verða að 920.000 tonnum af CO2 sem er ca.15 % af heildalosun Íslendinga fyrir utan Kötlu.En hún er 20 tonn á hvern Íslending plús 10 % persónulega á Katrínu Jakobsdóttur fyrir hverja flugferð hennar á loftslagsráðstefnu.
En öll losun Íslendinga með öllu sínu brölti yfir árið er sama magn og stígur upp úr Kötlu. Og þá eru til dæmis Holuhraunið, Askja, Eyjafjallajökull,Hekla og Mið Atlantshafshryggurinn eftir.20 tonn x 365.000 Íslendingar eða 7.300.000 tonn eða 0.0073 Gigatonn af heimslosuninni sem er talin 37 Gigatonn. Og Kínverjar gangsetja eitt kolakynt raforkuver á viku sem hvert um sig blæs kannski út álíka miklu CO2 og allir Íslendingar.
Það er óþarfir að leggja bílagrey landsmanna í einelti eins og þeir Hjálmar og Dagur gera í Reykjavík, það eru nefnilega ekki allar syndir Guði að kenna.