eru á ferð í fréttum í Mogga.
Það er vitnað í Ban Ki Moon og Bill Gates málinu til stuðnings. Birt er mynd af brasílíksum bónda sem gengur um brunnin skógarbotn. Talsverð líkindi eru til þess að einmitt hann sjálfur hafi vísvitandi kveikt eldinn til að fá sér meira ræktarland.
Moggi segir:
"Skýrslan segir alvarlegar afleiðingar nú óumflýjanlegar og áætlar að verði ekki gripið til varúðarráðstafana kunni 100 milljónir manna til viðbótar að búa við fátækt árið 2030. Þeim sem búa við vatnsskort muni fjölga úr 1,4 milljörðum í fimm milljarða og það muni valda áður óþekktri samkeppni um vatn sem aftur muni kynda undir deilum og fólksflutningum.
Þá muni hækkandi staða sjávar og aukning stormviðra leiða til þess að hundruð milljóna manna sem í dag búa við sjávarsíðuna yfirgefi heimili sín og kostnaður vegna þess muni nema um einni billjón (milljón milljónum) árlega árið 2050.
„Það er þjóðum heims hagkvæmast að fjárfesta í aðlögun,“ sagði Patrick Verkooijen, framkvæmdastjóri GCA, en samkvæmt skýrslunni kann það, að eyða 1,8 billjónum dollara í fimm lykilsvið fyrir árið 2030, leiða til 7,1 billjónar dollara hagnaðar með því að koma í veg fyrir skaða og auka efnahagsvöxt."
Allt nema það eina sem við blasir sem verður að snúast gegn.
Stjórnlaus fjölgun mannkyns.
Það verður að ráðast gegn þeirri vá. Kaupa fólk í vanþróuðum ríkjum sérstaklega hreinlega til að takmarka barneignir. Þar fæst mest fyrir peninginn.
Annars kemur bara heimsendir þegar mannfjöldinn fer yfir 10 milljarða og meira og þá er alveg sama hvað gert er í loftslagsvísindunum, endirinn kemur.