mátti sjá í Morgunblaðsmynd þaðan
Á myndinni sjást 10 borgandi akreinar auk gjaldfrjálsra hliðarreina og axlar, þar sem Borgarlína gæti best farið um.
Þetta er stórkostlegt mannvirki. Það sýnir hinsvegar hvaða samgöngumáta fólkið hefur valið sér. Það væri líklega til lítil að fara að þrengja þennan veg til að fá fólk ofan af því að eiga bíl og fara að hjóla. Enda vegalengdir miklar í stóru landi.
Kalifornía er hinsvegar að reyna að takmarka útblástur með frjálsum samningum við bílaframleiðendur sem er auðvitað mjög æskilegt. Hvort það er svo rétt ályktun hjá Morgunblaðinu að þetta sé gert til að koma höggi á Trump og tregðu hans við að hlaupa eftir heimsendaspámönnum í loftslagsmálum.
"Fjórir stórir bílaframleiðendur tilkynntu í dag að þeir hefðu komist að samkomulagi við stjórnvöld í Kaliforníuríki um reglur varðandi eldsneytislosun og sniðganga með því tilraunir stjórnar Donald Trumps Bandaríkjaforseta til að svipta Kaliforníuríki réttinum á að setja eigin staðla.
Kalifornía og fleiri ríki Bandaríkjanna hétu, eftir að Trump afnam stefnu Bandaríkjanna í losunarmálum, að framfylgja losunarstöðlum sem settir voru í forsetatíð Barack Obama.
Reuters segir bílaframleiðendur hafa haft áhyggjur af að dómsmál milli Kaliforníu og alríkisyfirvalda um rétt ríkisins til að setja sína eigin staðla tæki langan tíma.
Það eru Ford, Honda, Volkswagen og BMW sem sömdu við Kaliforníu „á laun“ að því er segir í yfirlýsingu Kaliforníustjórnar sem kveður samkomulagið veita 50 ríkja lausn sem hindri að bútasaumur reglugerða verði til í ríkjum landsins."
Trump hefur ekki viljað gleypa loftslagsvísindin hrá þar sem vísindaleg rök vantar á mörgum sviðum.
En þessi mynd af því hvernig byggja má upp vegakerfi er afbragð.
Ólíklega getur Borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík dregið einhverjar ályktanir af því hvernig Kaliforníubúar leysa sín með samningum og skynsemi í stað gerræðisákvarðana um lokanir og þrengingar.