úr því að ESB efnir ekki sinn hluta. En við hinsvegar lepjum allt hundflatir sem það réttir okkur. Auk þess að hafa minnkað markaðinn um fimmtung með BREXIT.
Stjórnvöld hafa átt í viðræðum við Evrópusambandið frá því á árinu 2017 um að íslenskar sjávarafurðir njóti fulls tollfrelsis inn á innri markað sambandsins í gegnum aðild Íslands að EES-samningnum en til þessa hafa þær viðræður hins vegar ekki borið árangur.
Þessi staða varð Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra að umtalsefni á fundi EES-ráðsins í Brussel á dögunum hvar fulltrúar Íslands, Noregs, Liechtenstein og Evrópusambandsins fögnuðu 25 ára afmæli EES-samningsins sem tók gildi árið 1994.
Fram kom í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að Guðlaugur Þór hefði ítrekað þá skoðun íslenskra stjórnvalda á fundinum að fullt tilefni væri til þess að Evrópusambandið bætti markaðsaðgang fyrir íslenskar sjávarafurður með því að fella niður tolla.
Gulli glæsilegi.
Frétt af mbl.is
Full fríverslun ekki fengist
Ráðherrann hefði ennfremur bent á að á síðustu árum hefði orðið stefnubreyting í fríverslunarviðræðum Evrópusambandsins hvað varðar sjávarafurðir. Sem EES-ríki ætti Ísland ekki að þurfa að sæta hærri tollum en ríki sem stæðu utan innri markaðarins.
Vísaði Guðlaugur Þór þar til þess að Evrópusambandið hefur á undanförnum árum samið um víðtæka fríverslunarsamninga til að mynda við Kanada og Japan þar sem gert er ráð fyrir 100% tollfrelsi fyrir sjávarafurðir, en EES-samningurinn kveður ekki á um fullt tollfrelsi.
Frétt af mbl.is
Fullt tollfrelsi með sjávarafurðir
Ráðherrann gerði þessa stöðu einnig að umtalsefni í ræðu á málstofu í Háskólanum í Reykjavík um EES-samninginn 6. febrúar á þessu ári þar sem hann sagði Evrópusambandið hafa þráast við að veita Íslandi fullt tollfrelsi fyrir sjávarafurðir í gegnum samninginn.
„Það er einnig okkar markmið að koma á fullri fríverslun með fisk en ESB hefur þráast við að fella niður tolla á tilteknar fiskafurðir,“ sagði Guðlaugur Þór í ræðu sinni, en sérstök tollakjör inn á markað Evrópusambandsins voru ein af forsendunum fyrir því að Ísland gerðist aðili að EES-samningnum fyrir um aldarfjórðungi síðan."
Ísland kyssir vöndinn hjá ESB og Gulli með betlistaf í hendi í von um að ESB standi við sitt.Er EES nauðsynlegt af því bara að hann er bestur í heimi og non est disputandem í Sjálfstæðisflokknum?