öllu sem Davíð gerir eða segir. Það er mottóið hjá vinstri pressunni.
Davíð fær eftirlaun. Þá dragast þau frá kaupinu sem hann annars fengi sem Forseti. Þannig er sparnaðurinn reiknaður niður í helming þess sem hann raunverulega er. Þetta skiptir altso eiginlega engu máli -eða þannig?
Lygi og blekking. Davíð er núna fyrst að taka eftirlaun í fríi frá Mogga. Ef hann verður Forseti heldur hann áfram á eftirlaununum aðeins. Hann tekur ekki Forsetalaunin. Hvað sparast?
Er það ekki morgunljóst að næði hann kjöri borgar ríkið honum aðeins þessi eftirlaun af því að hann ætlar ekki að taka Forsetalaunin. Næði hann ekki kjöri, þá gegnir einhver annar Forsetaembættinu fyrir Forsetakaupið. Er það ekki munurinn? Eitt Forsetakaup. Ekkert Forsetakaup mínus eftirlaun eins og fréttafölsunardeildirnar reyna að búa til. Davíð fer aftur á Mogga,- engin eftirlaun. Forseti er á Forsetalaunum.
Reynt er að snúa öllu á haus til að gera djöful úr Davíð. Það eru ær og kýr fjölmiðlanna sem eru vinstri-hlutdrægir á Íslandi.
Snúa út úr öllu jákvæðu þegar Davíð Oddsson á í hlut og ljúga og blekkja.