Quantcast
Channel: Halldór Jónsson
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922

Enn hrap í Hörpu

$
0
0

samkvæmt samantekt hins glögga skólabróður míns hans Örnólfs Hall arkitekts sem er manna fróðastur um það langdregna klúður sem bygging þessa húss er. 

Það var ráðist í þessa byggingu í hugljómun um að búa til glæsibyggingu fyrir þjóðina sem væri svo flott að engin dæmi yrðu um neitt slíkt fyrr né síðar og myndi fylla þjóðina nauðsynlegum eldmóði til að hrífa hana upp úr öldudal kreppu og hruns.

Allir færustu sérfræðingar landsins voru fengnir að hönnuninni. Byggð voru í raun tvö hús hvort utan um annað af þvílíku flækjustigi að engan enda virtist taka.

En hvað segir Örnólfur í sinni samantekt:


RI- ÁIÐ 2018 ER ENN EITT TAPÁR  HÖRPU  ÞRÁTT  FYRIR 
FJÖLDA TÓNLEIKA,ALLSKONAR VIÐBURÐA og SMÁRÁÐSTEFNA :

1)- Þrátt fyrir allan fjöldann af tónleikum og viðburðum er tapið um 462 milljónir (461.468.000) - og meira en 2017 sem var 243 milljónir (243.326.000).


2)-Þrátt fyrir öll stóru meðlögin (nú síðast 400 aukamilljónir frá ´ríki & borg´) og stóryrtu  loforðin (forkólfa/forystusauða) um að hún yrði örugglega sjálfbær í síðasta lagi 2014. -


Nb: Allar stórráðstefnur hafa brugðist (5-6 þúsund manna). Mest urðu 2 þúsund  tanntæknar-og læknar 2012.

3)- Hversvegna skyldi þetta nú vera ?:
a- Of lágt miðaverð ?
b- Gríðarlegar skuldir ?
c- Þung viðhaldsbyrgði ?
d- Lélegir og vanhæfir stjórnendur ?
e- Klúðurslegt  og flókið stjórnskipulag Hörpu ?
f- Stórráðstefnurnar hafa  brugðist ?

Es: Sem sagt 2018 tapar -enn einn ganginn- ´húsið okkar´ svokallaða  (dansk hannaða) 
462 milljónum !!!


(Es: Til upplýsinga: Háskóli Íslands hreppti stærstu ráðstefnuna hingað til árið 2011,um 5 þúsund stjórnmálafræðinga, sem bjargaði  fjárhag Háskóla Íslands sem betur fer eftir 260 milljóna króna niðurskurð Mennta- og Fjármálaráðuneyta.


Á meðan þau létu bruðlið með 130 milljóna króna glerþak Hörpu óátalið. Glerþakið þegar nú þegar þreytta sem fæstir sjá nema úr lofti.)


Mynd 1: Stiklur úr Hörpurekstrarsögu.

II- VILHJÁLMUR EGILSSON (Rektor í Bifröst) VARAFORMAÐUR STJÓRNAR HÖRPU
SKRIFAR UNDIR SKÝRSLU STJÓRNAR MEÐ FYRIRVARA:
Hann er harðorður um margt í skýrslunni og túlkun hennar og segir m.a. :


„En nú tel ég að mér sem stjórnarmanni  sé ekki lengur  stætt á að taka ábyrgð á því ástandi sem hefur skapast þegar samstæðan er komin með neikvætt eigið fé samkvæmt þessum ársreikningi.“

-„Til viðbótar tel ég að verðmæti fasteignarinnar sé ofmetið í efnahagsreikningi Hörpu ohf.“


(Sjá meðfylgjandi fyrirvara Vilhjálms E gilssonar (sjá viðhengi/fyrirvari VE))


-<0>-
III- VIÐHALD HÖRPU:
-Viðhald (annar húsnæðiskostnaður).
: - 2018-328.837
-do-  :-2017: 287.975.000
-do-  :-2016: 316.306.000
-do-  :-2015: 264.941.344
-do-  :-2014: 256.030.790
-do-  :-2013: 563.000.000
-do-  :-2012: 97.897.077

-do-  :-2011: 104.633.875


Samtals árin er viðhald Hörpu  (húsnæðiskostn.) : um 1.9 milljarðar

-<0>-

IV- HÖRPU HRAÐSMÍÐIN (danskhannaða) og ÍSLANDSLÆGÐIRNAR-
Gífurlegur viðhaldskostnað vegna galla m.a. leka vegna bévítans Íslandslægðanna hryssingslegu (sjá ársskýrslur og svör til fjárlaganefndar).


Es:-Minnt er á leka á ABBA-tónleikum í den og undir og frá glerstássþaki þar sem forstjórinn stóð blautur í fætur í bleytunni í Norðurljósasal.


Mynd 2,3- Harpan hraðsmíðaða á verulega bágt í bévítans ´lægðabestíunum´  og þarf að kalla út hjúkrunarlið með ´plástra-kítti´ á þreyttu glerstássveggina og þétta sílikonlista og klæðningar (sjá myndir).
 NB: Pressan forðast að tala um þetta (tabú(?)) !

Viðhaldskostnaður var gefinn upp fyrir 2010 í Fjárlögum Alþingis 2011-(02-969/6.23) var sagður 44.2 milljónir vegna viðhalds Hörpu (nb: það fyrir opnun /er ekki með þarna).
Mynd 3,4,5-


V-ÝMISLEGT ANNAÐ ER Á BRAUÐFÓTUM Í HÖRPU:
´BRAUÐ-SMURSTÖÐIN´er FARIN á HAUSINN
og ÞAR ÁÐUR HRAPAÐI ´MUNNHARPAN´MEÐ TORRÆÐU
HÓPKAUPASÚPURNAR-


Es: Harpan greiddi 655.468 kr. (án vsk.) vegna breytinga á 'Munnhörpu´ yfir í 'Smurstöð' - en allt kom fyrir ekki !! 
Mynd 3- Túristum ofbjóða þarna prísarnir á smursneiðunum í ´Smurstöðinni‘ og opna frekar ´skotteldhús´ sitt  útí bíl fyrir utan Hörpu !


Mynd 6.

VI- AÐ LOKUM :
VEIT EINHVER HVAÐ HARPAN KOSTAR RAUNVERULEGA FRÁ A-Ö Í DAG ?
Es: Annað t.d.: Getur nokkur upplýst okkur skattgreiðendur um öll feitu launin og kostnaðinn af
´silkihúfunum´(sama fólkið þvers og kruss m.a.

Hörpustýran Sv.Kon.): Portus, Situs, Totus, Ago, Hospes (m.a. peningarnir sem fóru í mangið um Hörpuhótelið 'Hospes'?),Castos og ekki má gleyma sér Hörpubankanum ´Hringi´ (CircleHarpBank)?


-Ekki má heldur gleyma verkfræðinga-og vertakaklúðrinu (ónýti glerstássveggurinn/suðurveggur) sem við ´alsaklausir´ skattgreiðendur fengum að vera með í að borga !

Saga Hörpureksturs til 2018 A

 

 

 

 

 

II-Hörpuskýrsla 2018- fyrirvari Vilhjálms Egilssonar B

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hörpu- glerþak  lekur -16-12-15 - Copy - CopyC

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

-Harpa á bágt í bévítans lægðaganginum ! - Copy -D

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Harpa á enn mjög bágt í haustlægðunum -Mynd tekin 1.10.2018 E

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Túristar hafna matarpísunum í Hörpu (Smurstöð-fv. Munnharpa-Kolabraut) og fá sér frekar úr skotteldhúsinu !!! -G

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Er ekki kominn tími til að setja hálfanmilljarð í Hörpuhrap  sem fastan lið í fjármálaáætlun ríksisins?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2922